Kortleggja dópgreni í miðbænum Snærós Sindradóttir skrifar 21. ágúst 2014 09:15 Upplýsingar um staðsetningu húsanna og myndir af þeim fengust frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu Fréttablaðið/Garðar Kjartansson
Lögregla hyggst bregðast við brunanum á Grettisgötu fyrr í vikunni með því að skrásetja markvisst yfirgefin hús og dópgreni. Mikil mildi þykir að ekki fór verr en þrír menn voru í húsinu þegar það brann og komust þeir út af sjálfsdáðum. „Þetta hefur í raun ekki verið ofarlega á baugi hjá okkur og ekki verið litið á þetta sem sérstakt vandamál,“ segir Kristján Ólafur Guðnason aðstoðaryfirlögregluþjónn. Hann segir að við brunann hafi lögreglan vaknað upp við vondan draum. Bregðast verði við svo slys verði ekki á fólki.Kristján Ólafur GuðnasonMarkmið lista lögreglunnar er að húsunum verði lokað með tryggilegum hætti og þau gerð innbrotsheld. Kristján segir að haft verði samband við eigendur húsanna en í mörgum tilfellum eru það bankar og fjármálastofnanir. „Það er verið að reyna að leita leiða núna til að tryggja að svona komi ekki upp aftur,“ segir hann. Kristján gerir ekki ráð fyrir að það muni taka langan tíma að taka upplýsingarnar saman. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur tekið saman lista yfir yfirgefin hús um nokkurra ára skeið. Athygli vekur að þeim hefur fækkað ört á síðastliðnum árum. Á lista slökkviliðsins árið 2009 voru 42 hús en árið 2013 voru þau aðeins ellefu talsins. Það er fækkun um tæp 75 prósent. Ólafur R. Magnússon deildarstjóri forvarnarsviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.Ólafur R. Magnússon, deildarstjóri á forvarnarsviði Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir að ástæðu fækkunarinnar megi rekja til þess að mörg þeirra húsa sem voru yfirgefin hafi verið rifin. Einnig hafi hús verið tekin aftur í notkun. „Okkar aðkoma að þessu er að tryggja að óviðkomandi fari sér ekki að voða þarna inni. Sum húsin eru án rafmagns. Ef fólk hefur ekki í önnur hús að venda þá getur skapast hætta þegar reynt er að kynda með öðrum hætti.“ Árið 2009 réðst slökkviliðið í átak með það að markmiði að loka yfirgefnum húsum. Eigendum þeirra var þá gerð grein fyrir því að loka yrði húsunum tryggilega ellegar yrði það gert á kostnað þeirra sjálfra. Verkefninu var fylgt stíft eftir og þótti takast vel.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira