Nautahakk hefur hækkað um 15% á 18 mánuðum Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. ágúst 2014 07:00 Nautakjötið er flutt inn frá að minnsta kosti níu löndum, þar á meðal Danmörku, þaðan sem þessi myndarlegi kjötbiti kemur. vísir/valli
Á einu og hálfu ári hefur nautakjöt í heildina hækkað um tæp átta prósent í verði. Það er mun meiri hækkun en á öðrum kjöttegundum, en lambakjöt og fuglakjöt hefur til að mynda lækkað um tvö til þrjú prósent í verði á síðustu átján mánuðum.Innflutningur á nautakjöti hefur tífaldast hér á landi vegna aukinnar eftirspurnar og minni framleiðslu innanlands. Sérstaklega hefur innflutningur á nautgripakjöti til hakkgerðar aukist síðustu misseri og á sama tíma hefur nautahakk hækkað um tæp fimmtán prósent í verði.Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.vísir/stefánVerndartollar eru á innfluttu nautakjöti þrátt fyrir að innlend framleiðsla anni ekki eftirspurn á markaði. Það gagnrýnir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, enda ætti vara sem hækkar í verði vegna skorts ekki að njóta verndartolla. „Okkar sjónarmið er að á meðan innlendir framleiðendur geti ekki annað eftirspurn eigi að fella niður þessa tolla,“ segir Andrés. „Þetta bitnar á neytendum, það liggur í hlutarins eðli. Það er verið að halda uppi verðinu með tollum og svo með vöntun á vörunni, þá gildir gamla lögmálið um framboð og eftirspurn, og verðið hækkar enn meira.“ Ólafur Friðriksson, skrifstofustjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, bendir á að tollar hafi verið lækkaðir í febrúar síðastliðnum með svokölluðum opnum tollkvóta. Spurður af hverju verndartollar séu þó enn á innfluttri vöru sem annars fáist ekki í landinu, svarar hann að þannig séu lögin og framkvæmt sé samkvæmt þeim. „Reglan er að vernda innlenda framleiðslu, þannig að innflutta verðið felli ekki innlenda verðið,“ segir Ólafur. „Ef innflutningsverðið er lægra er lagður tollur á mismuninn.“ Ólafur er þá spurður hvort ekki skjóti skökku við að vernda innlendar verðhækkanir með tollum. „Við getum ekki vitað hvort skorturinn sé að valda þessum verðhækkunum eða eitthvað annað. Það eru sveiflur í kjötverði, einnig á heimsmarkaði, sem gætu einnig útskýrt þessa hækkun.“
Tengdar fréttir Danskt naut í SS pylsunum Vegna mikils skorts á íslensku nautakjöti hefur Sláturfélag Suðurlands gripið til þess ráðs að nota danskt nautakjöt. 22. júlí 2014 07:00 Annar hver hamborgari á þessu ári úr spænsku nautakjöti Vegna skorts á nautakjöti innanlands hafa söluaðilar þurft að stórauka innflutning á erlendu nautakjöti. Meira en helmingur af nautahakki sem dótturfélag Haga selur sem hamborgara er innfluttur frá Spáni. 7. ágúst 2014 19:00 Hvernig aukum við nautakjöts- framleiðsluna? Undanfarnar vikur hefur talsvert verið rætt um málefni nautakjötsframleiðslunnar og hvernig eigi að mæta ört vaxandi eftirspurn eftir nautakjöti hér á landi. Í þessari umræðu hefur sitthvað verið málum blandið 22. júlí 2014 07:00 Tífalt meira nautakjöt flutt inn á milli ára Á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru rúm 535 tonn af nautakjöti flutt inn til landsins samanborið við tæp 49 tonn árið áður. Mesta aukningin er á kjöti til hakkgerðar. Frumvarp um innflutning á erfðaefni til kjötframleiðslu er í vinnslu. 12. ágúst 2014 07:00 Mest lesið Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Þau skipa lista Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra Sjá meira
Danskt naut í SS pylsunum Vegna mikils skorts á íslensku nautakjöti hefur Sláturfélag Suðurlands gripið til þess ráðs að nota danskt nautakjöt. 22. júlí 2014 07:00
Annar hver hamborgari á þessu ári úr spænsku nautakjöti Vegna skorts á nautakjöti innanlands hafa söluaðilar þurft að stórauka innflutning á erlendu nautakjöti. Meira en helmingur af nautahakki sem dótturfélag Haga selur sem hamborgara er innfluttur frá Spáni. 7. ágúst 2014 19:00
Hvernig aukum við nautakjöts- framleiðsluna? Undanfarnar vikur hefur talsvert verið rætt um málefni nautakjötsframleiðslunnar og hvernig eigi að mæta ört vaxandi eftirspurn eftir nautakjöti hér á landi. Í þessari umræðu hefur sitthvað verið málum blandið 22. júlí 2014 07:00
Tífalt meira nautakjöt flutt inn á milli ára Á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru rúm 535 tonn af nautakjöti flutt inn til landsins samanborið við tæp 49 tonn árið áður. Mesta aukningin er á kjöti til hakkgerðar. Frumvarp um innflutning á erfðaefni til kjötframleiðslu er í vinnslu. 12. ágúst 2014 07:00