Dalamenn bjóða nágrönnunum upp í dans Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 16. júlí 2014 08:00 Dalamenn virðast til í að fara í eina sæng með Strandamönnum og Reykhólamönnum. MYND/GAG
Sveitarstjórn Dalabyggðar óskar eftir fundi með sveitarstjórnum Strandabyggðar og Reykhólahrepps á haustmánuðum með það fyrir augum að kanna möguleikana á sameiningu sveitarfélaganna þriggja. Þetta var samþykkt á síðasta sveitarstjórnarfundi en þá voru líka lagðar fram niðurstöður skoðanakönnunar sem gerð var jafnhliða sveitarstjórnarkosningunum í vor. Bera þær með sér sameiningarfýsi Dalamanna. Sams konar könnun var gerð í Reykhólahreppi en þar var mjótt á munum, sameiningarmenn voru þó fjórum fleiri. Engin slík könnun hefur farið fram í Strandabyggð. „Hér er fólk mjög opið fyrir öllum möguleikum,“ segir Andrea Kristín Jónsdóttir, sveitarstjóri Strandabyggðar. Hún segir enn fremur að sveitarstjórn Dalabyggðar hafi sent þeim niðurstöður skoðanakönnunarinnar. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að kanna hug Strandamanna en Andrea Kristín segir þessi mál verða rædd. Hún segir enn fremur að nýr vegur yfir Þröskulda hafi breytt miklu fyrir Hólmavík og nágrenni sem sé nú í hjarta Vestfjarða eftir lagningu vegarins. Karl Kristjánsson, oddviti sveitarstjórnar Reykhólahrepps, segir að málið gæti orðið þungt þar í sveit þar sem svo naumur meirihluti sé fyrir því. Hann segist þó sjálfur ver frekar hlynntur sameiningu. Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, segir að ef nágrannarnir tveir fáist upp í þennan vagn verði það tilkynnt yfirvöldum sem þá geti haft milligöngu um framgang mála. Eitt af því sem breytast myndi í Reykhólahreppnum við slíka sameiningu er persónukjörið sem þar er viðhaft en Karl segir á því bæði kosti og annmarka. Í slíku fyrirkomulagi eru allir íbúar í kjöri svo það fylgir því í raun þegnskylda að verða kosinn til ábyrgðar. Sá er setið hefur í sveitarstjórn eitt kjörtímabil á þó kost á því að skorast undan að sitja það næsta. Allir í síðustu sveitarstjórn nýttu sér þann kost. Karl hefur áður setið í sveitarstjórn og þekkir því til starfans. Hann segir að ákvörðun fyrri stjórnarmanna geti hugsanlega stafað af því að starfinu fylgi álag sem er síðan ekki í samræmi við laun sem hann segir lág. „En hins vegar tel ég að það geti verið hollt fyrir íbúa að finna með svo áþreifanlegum hætti til samfélagsábyrgðarinnar,“ segir hann.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna Sjá meira