Auglýsa Grímsstaði á Evrópska efnahagssvæðinu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 9. júlí 2014 07:15 Grímsstaðir á Fjöllum verða auglýstir til sölu á Evrópska efnahagsvæðinu á næstu dögum að sögn eigenda meirihluta jarðarinnar. Fréttablaðið/Pjetur „
Okkur finnst vera komið nóg. Það er búið að draga okkur á asnaeyrunum í á þriðja ár,“ segir Jóhannes Haukur Hauksson, einn fjögurra eigenda sem hyggjast á næstu dögum auglýsa 72 prósenta hlut í Grímsstöðum á Fjöllum til sölu á Evrópska efnahagssvæðinu. Eins og kunnugt er höfnuðu stjórnvöld því að heimila Kínverjanum Huang Nubo að kaupa hlut fjórmenninganna í Grímsstöðum. Þá stóð til að jörðin yrði seld eignarhaldsfélagi sveitarfélaga á svæðinu sem síðan myndi gera samning við Nubo um leigu á Grímsstöðum til langs tíma. Ríkið á um 23 prósent í jörðinni á móti fjórmenningunum og nokkrir einkaaðilar afganginn.Jóhannnes Haukur Hauksson Einn eigenda Grímsstaða. Fréttablaðið/E. ÓlSegjast ekkert fá að vita Jóhannes bendir á að fyrir langtímaleigunni til Nubos þurfi undanþágu frá lögum sem ekki hafi fengist. „Því var raunverulega ekki neitað en ríkisstjórnin sagðist þurfa að endurskoða lögin. Sú nefnd er búin að skila af sér til innanríkisráðherra og ráðherra er búinn að vera með niðurstöðuna í þrjár vikur en við fáum ekkert að vita og það veit enginn hvernig það fer,“ segir Jóhannes. Hver sem er á Evrópska efnahagssvæðinu hefur rétt til að kaupa fasteign hér og Jóhannes segir að hugsanlegir kaupendur hafi þegar sett sig í samband. „Það hafa aðilar sýnt þessu mikinn áhuga en við vitum náttúrlega ekki hvað er á bak við það,“ segir Jóhannes sem kveðst ekki vita nákvæmlega um fyrirætlanir þessara aðila á Grímsstöðum. „Við ætlum ekki að loka neinum möguleikum. Við ætlum bara að kanna hvað annað er í boði á Evrópska efnahagsvæðinu.“
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Fleiri fréttir Lögreglan í aðgerð á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira