Frumvarp um nýtt millidómstig í haust Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 9. júlí 2014 07:00 Ný lög um dómstóla gætu orðið að veruleika á næsta þingi. Það myndi þýða miklar breytingar á starfsemi Hæstaréttar. Fréttablaðið/stefán
Stefnt er að því leggja fram frumvarp um millidómstig á haustþingi. Nefnd sem falið var fyrir tæpu ári að fjalla um hvernig millidómstigi yrði komið á laggirnar er um það bil að ljúka störfum og mun skila Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra skýrslu og tillögum innan skamms. Á Íslandi er nú tveggja dómstiga kerfi, þar sem héraðsdómar dæma í málum á neðra stigi en Hæstiréttur á efra stigi. Annars staðar á Norðurlöndunum eru dómstigin þrjú og stefnt er að því að koma líku kerfi á hér á landi. Samkvæmt þeim tillögum sem eru uppi á borðinu breytist starfsemi héraðsdómstóla ekki, mál koma til með að fara frá þeim til millidómstigsins þar sem lagt verður nýtt mat á vitnisburði og hægt verður að leggja fram ný sönnunargögn í málum. Breytingin er sú að í dag endurmetur Hæstiréttur ekki munnlega sönnunarfærslu. Hæstiréttur myndi veita áfrýjunarleyfi en í því felst að Hæstiréttur ákveður sjálfur hvort hann tekur mál til meðferðar. Þá er gert ráð fyrir að Hæstiréttur geti tekið fyrir mál án þess að þau komi til kasta millidómstigsins ef ekki er talin þörf á að taka nýjar skýrslur af vitnum. Rætt er um að fjöldi dómara á millidómstigi gæti orðið tólf til fimmtán og að dómstóllinn verði deildaskiptur. Gera má ráð fyrir verulegri fækkun mála sem enda fyrir Hæstarétti, flestum málum ljúki fyrir millidómstigi. Nú sitja níu dómarar í Hæstarétti, og dæma þrír, fimm eða sjö í hverju máli. Nái breytingarnar fram að ganga mun Hæstiréttur starfa í einni deild sem þýðir að allir dómararnir koma til með að dæma í öllum þeim málum sem koma til kasta Hæstaréttar. Í framtíðinni kemur hæstaréttardómurum til með að fækka í fimm til sjö. Nokkur ár eru síðan farið var að ræða nauðsyn þess að koma á laggirnar millidómstigi til að létta álagi af Hæstarétti. Árið 2008 skipaði þáverandi dómsmálaráðherra nefnd sem fjallaði um hvernig væri hægt að tryggja milliliðalausa sönnunarfærslu í sakamálum. Innanríkisráðherra skipaði svo starfshóp árið 2011 sem taldi raunhæft að stofna millidómstig.
Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira