Telja Isavia draga þrisvar sinnum of mikið af launum eftir vinnustöðvun Garðar Örn Úlfarsson skrifar 26. maí 2014 07:00 Þurfum að fara alla leið gegn Isavia, eins og alltaf, segir Kristján Jóhannsson, formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins. Fréttablaið/Daníel „
Þetta er afar óréttlátt og við munum leita réttar okkar,“ segir Kristján Jóhannsson, formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins, eitt þriggja félaga sem nýlega gerði kjarasamning við Isavia eftir þrjár fimm klukkustunda vinnustöðvanir. Isavia hefur hýrudregið alla vaktavinnumenn úr vinnustöðvunarfélögunum um fimmtán klukkutíma, sem mun svara til um 24 þúsund króna, burt séð frá því hvort þeir hafi átt vakt eða ekki þegar vinnustöðvanirnar stóðu yfir.Munurinn fimm milljónir Kristján segir að um þrjú hundruð félagsmenn hans séu í vaktavinnu fyrir Isavia. „Það er eins og fyrirtækið gefi sér að allir hafi verið að vinna í einu – sem er ekki. Hið rétta er að á bilinu áttatíu til hundrað manns áttu að vera vakt í þessa tíma. Okkar skoðun er sú, og hún er studd áliti okkar lögfræðinga, að fyrirtækið verði að reikna þann tíma sem raunverulega tapaðist í vinnu en ekki reikna út frá því að allur hópurinn hafi átt að vera í vinnu í þessi skipti,“ segir Kristján. Flugvallarstarfsmenn hafa reiknað út að vaktavinnumennirnir hafi að meðaltali verið frá vinnu vegna aðgerðanna í fjóra og hálfa klukkustund. Það sé þannig meira en þrefalt fleiri tímar sem Isavia hafi skert launin. Munurinn fyrir fyrirtækið samkvæmt grófu mati er nærri fimm milljónir króna að sögn Kristjáns.Segir Isavia stórgræða „Það sjá allir að Isavia er að stórgræða á þessu. Við teljum sanngjarnt að þessum vinnutímum sem raunverulega töpuðust sé skipt jafnt á alla okkar félagsmenn. Þannig að þeir sem áttu vaktina þegar verkfallið stóð beri ekki einir skaðann,“ segir Kristján sem kveður Isavia ósveigjanlegt. „Við verðum að leita réttar okkar í þessu máli. Það verður að fara með þetta alla leið – eins og alltaf þegar Isavia á í hlut.“ Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Isavia, segir fyrirtækið standa rétt að uppgjörinu vegna vinnustöðvananna. Það sé í samræmi við verklagsreglur sem séu við lýði hjá Samtökum atvinnulífsins.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira