Byrjað að sprengja Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 24. mars 2014 06:00 Sprengingin fór fram að viðstöddum nokkrum fjölda fólks. Vísir/Fjarðabyggð
Bæjarstjóri og bæjarráð Fjarðabyggðar hleyptu í gær í sameiningu af fyrstu sprengingunni vegna Norðfjarðarganga Fanndalsmegin á laugardagskvöld og hófu með þeim formlega sjálfa jarðgangagerðina. Af þessu tilefni fór einnig fram athöfn í nafni heilagrar Barböru, verndardýrlings námumanna, að kaþólskum sið og var líkneski af dýrlingnum komið fyrir innan við upphafsmörk ganganna. Að athöfninni stóðu Metrostav og Suðurverk, verktakar Norðfjarðarganga.Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, segir að með samstilltri baráttu hafi tekist að gera Norðfjarðargöng að veruleika. Sú samvinna hafi náð þvert yfir stjórnmálaflokka og gömul hreppamörk í Fjarðabyggð og sé til vitnis um þann mikla samtakamátt sem í heimafólki býr. Það sé því við hæfi að fulltrúar allra stjórnmálaflokka í bæjarstjórn hafi í sameiningu hleypt þessari fyrstu sprengingu af. Þá þakkar hann einnig stuðning annarra sveitarfélaga á Austurlandi og mikilvæga liðveislu þeirra í baráttunni.„Með þessum ánægjulega áfanga getum við litið sérlega björtum augum fram á veginn. Þó að þýðing Norðfjarðarganga sé gríðarleg hvað öryggi snertir og lífsgæði þeirra sem hér búa, þá nær áhrifasvæði þeirra langt út fyrir Norðfjörðinn. Fjarðabyggð er sem ungu sveitarfélagi gert kleift að mynda í reynd samsteypta heild. Styrkari stoðum er skotið undir atvinnulíf svæðisins og nýsköpun og þær mikilvægu stoðstofnanir sem starfa í Neskaupstað geta nú eflt til muna þjónustu sína við Austfirðinga,“ segir Páll. Í bæjarráði Fjarðabyggðar eiga sæti Jens Garðar Helgason, formaður, Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar og Eydís Ásbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi.
Mest lesið Starfsmenn ráðuneytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una ölmusu foreldra Innlent Líkamsárás í verslunarmiðstöð Innlent Perutertan lifir af inngildingu heilsufæðis á Alþingi Innlent Ráðist að vagnstjóra og strætónum rænt í Garðabæ Innlent Vinstrið á blússandi siglingu Innlent Alvarleg mistök hjá barnaverndarþjónustu: „Við sofnuðum á verðinum“ Innlent Telur ríkisstjórn skemma efnahaginn vísvitandi fyrir ESB-atkvæði Innlent „Fólk var rosalega hrætt þegar það kom sjónvarp“ Innlent Gular veðurviðvaranir í kortunum Veður Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Innlent Fleiri fréttir Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Lokun Hormússunds: Takmörkuð áhrif á áburðarverð til bænda í ár en óvíst um framhaldið Vinstrið á blússandi siglingu Eldur kviknaði í bíl Líkamsárás í verslunarmiðstöð Perutertan lifir af inngildingu heilsufæðis á Alþingi Telur ríkisstjórn skemma efnahaginn vísvitandi fyrir ESB-atkvæði Starfsmenn ráðuneytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una ölmusu foreldra „Fólk var rosalega hrætt þegar það kom sjónvarp“ Ráðist að vagnstjóra og strætónum rænt í Garðabæ Innviðagjald og hækkun vasks eyðileggi samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar Guðmundur orðaður við Flokk fólksins í Reykjavík Alvarleg mistök hjá barnaverndarþjónustu: „Við sofnuðum á verðinum“ Dönsk börn fá sem nemur fjórum auka kennsluárum Foreldrar segja lögreglu gera lítið úr meintu kynferðisbroti á barni sínu á leikskólaaldri Alvarleg mistök, dýrara í baðlónin og páskaveðrið Snekkjan fékk undanþágu frá hafnbanni Mætti með haglabyssu á lögreglustöðina á Hverfisgötu Harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Bjóða út framkvæmdir vegna Sæbrautarstokks Annar í áframhaldandi gæsluvarðhaldi vegna árásarinnar Of stór biti að kyngja án íbúakosningar Stórt skref í einföldun leyfisveitinga fyrir orkuverkefni: „Við erum rétt að byrja“ Kostnaður við útför Davíðs var fimm milljónir króna Holtavörðuheiði líklega lokuð til morguns Hlaut stjörnulaga skurði eftir árás með skiptilykli 1,2 milljarðar á milli í bílastæðadeilu við nýjan Landspítala Rúv fær 165 milljónir frá ESB til að vinna þætti um vatn Hefur ekki hugmynd um hve margir telji sig eiga bókun Sjá meira