Neita að borga sakarkostnað sjóðstjóra Garðar Örn Úlfarsson skrifar 29. janúar 2014 07:00 Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, var ásamt framkvæmdastjóra sjóðsins dæmdur til að greiða sekt vegna rangra upplýsinga til Fjármálaeftirlitsins. Fréttablaðið/Pjetur
Kópavogsbær ætlar ekki að verða við ósk fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar um að greiða 595 þúsund króna sakarkostnað, sekt og lögfræðiinnheimtu í dómsmáli þar sem framkvæmdastjórinn var sakfelldur. Í bréfi til Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra rifjar Sigrún Ágústa Bragadóttir upp að hún hafi verið framkvæmdastjóri LSK í hruninu haustið 2008. Í umrótinu sem á eftir fylgdi hafi þáverandi stjórn ákveðið að lána Kópavogsbæ fé í formi peningamarkaðslána. Um var að ræða lán upp á allt að einum milljarði króna. Sigrún kveðst hafa fylgt þessari ákvörðun eftir. Það hafi leitt til uppsagnar í starfi, ákæru og síðan dóms í maí 2012. „Undirrituð var starfsmaður LSK og laut ákvörðun og vilja stjórnar í starfi sínu. Undirrituð hefur vægast sagt orðið fyrir miklum skaða af völdum ákvörðunar þessarar stjórnar og telur fyllilega rétt að Kópavogsbær ábyrgist þennan kostnað sem ábyrgðaraðili sjóðsins,“ skrifar Sigrún bæjarstjóranum.Ber aðeins að hlýða lögmætum skipunum Bæjarráð vísaði ósk Sigrúnar til umsagnar hjá bæjarlögmanni. Frá embætti hans kom sú niðurstaða að bænum væri ekki skylt að bæta Sigrúnu kostnaðinn vegna málarekstursins á hendur henni. „Í fyrsta lagi vegna þess að hún er ekki starfsmaður Kópavogsbæjar en í öðru lagi vegna þess að í starfi sínu fyrir LSK fór hún út fyrir umboð sitt,“ segir í umsögninni. Vísað er til þess að Sigrún hafi gefið Fjármálaeftirlitinu rangar upplýsingar. „Í forsendum dómsins segir meðal annars að ekki verði litið svo á að umboð sem framkvæmdastjórinn hafði til þess að senda FME upplýsingar, hafi tekið til þess að gefa rangar upplýsingar,“ segir bæjarlögmaður. „Þá má vísa til þess að samkvæmt lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna er starfsmönnum að sjálfsögðu aðeins skylt að fylgja lögmætum skipunum yfirmanna sinna.“Leiksoppur örlaganna segir þáverandi stjórnarformaður Bæjarráð ákvað að fenginni umsögn bæjarlögmanns að hafna beiðni Sigrúnar. Gunnar I. Birgisson, sem var formaður stjórnar LSK á umræddum tíma og sakfelldur fyrir sama brot og Sigrún, mælti með að ósk hennar yrði samþykkt. „Framkvæmdastjórinn stóð sig afar vel í starfi og stuðlaði meðal annars að því að tap LSK vegna hrunsins var mjög lítið miðað við aðra lífeyrissjóði. Framkvæmdastjórinn hefur verið leiksoppur örlaganna í þessu máli,“ bókaði Gunnar í bæjarráði.
Mest lesið Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Veður „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Erlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent Fleiri fréttir Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Sjá meira