Innlent

70 milljónir Rússa sjá Ísland

Bjarki Ármannsson skrifar
Úkraínsku ferðamennirnir náðu að upplifa margt á stuttum tíma hér á landi.
Úkraínsku ferðamennirnir náðu að upplifa margt á stuttum tíma hér á landi. Myndir/Af síðu South Iceland Adventures
Þáttur um Ísland og íslenska náttúru verður sýndur í rússneska ríkissjónvarpinu síðdegis. Hægt verður að horfa á þáttinn á netinu.

Um er að ræða þátt sem rússneska sjónvarpið lét gera í samráði við ferðaþjónustufyrirtækin South Iceland Adventure, Norðurflug og Hótel Rangá og fleiri aðila í ferðaþjónustu. 

Sést mikið af Íslandi

„Þetta er úkraínskur þáttur, en hann er sýndur í rússneska ríkissjónvarpinu,“ segir Sigurður Bjarni Sveinsson, eigandi South Iceland Adventures. „Samtals eru um sjötíu milljónir sem sjá þennan þátt.“

Þátturinn gengur út á það að tveir keppendur, karl og kona, eru sendir á framandi ferðamannastað. Fær annar þeirra kreditkort með ótakmarkaðri greiðsluheimild til að ferðast um og hafa ofan af sér í nokkra daga, en hinn aðeins um tíu þúsund krónur.

„Við sáum um allt skipulagið fyrir báða keppendur,“ segir Sigurður Bjarni. „Við reyndum að skipuleggja þannig að það sæist sem mest af Íslandi, þannig að meira að segja sú sem var ekki með kreditkortið náði að ferðast um Suðurlandið.“

Líklegast besti þátturinn

Meðal þess sem úkraínsku keppendurnir náðu að upplifa á þeim þremur dögum sem þeir voru staddir hérlendis í maí var þyrluflug, ferðir til Þórsmarkar og á Jökulsárlón og gisting á Hótel Rangá, þar sem sveit víkinga tók á móti þeim. Sigurður Bjarni segir að þetta eigi vonandi eftir að vekja meiri athygli ferðamanna á land og þjóð.

„Það er byrjað að sýna auglýsingar, kynna að þátturinn verði í kvöld, og við erum strax byrjuð að svara bókunum út af því. Þannig þetta vekur athygli.“

Hópurinn vann átján tíma vinnudaga þá þrjá daga sem þátturinn var tekinn upp hér á landi og segir hann að vinnan hafi verið mjög skemmtileg.

„Þetta er núna áttunda þáttaröðin þeirra, og þeir sem voru að vinna að þessu sögðu að Ísland væri klárlega í topp þremur af áfangastöðunum sem þau hefðu heimsótt. Aðalleikstjórinn sagði svo að þetta væri líklega besti þátturinn sem þau hefðu gert.“

Hér fyrir neðan má sjá auglýsingastiklu fyrir þáttinn, sem sýndur verður núna klukkan þrjú í dag að íslenskum tíma. Hægt ætti að vera að fylgjast með þættinum á vefnum hér.

Iceland from Oleg Shevchyshyn on Vimeo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×