Innlent

Einn handtekinn í umfangsmiklum lögregluaðgerðum í Breiðholti

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Fjórir lögreglubílar voru á vettvangi og lá sá handtekni á maganum á götunni með lögreglumann ofan á sér.
Fjórir lögreglubílar voru á vettvangi og lá sá handtekni á maganum á götunni með lögreglumann ofan á sér. mynd/róbert dan
Einn var handtekinn um klukkan fimm í umfangsmiklum lögregluaðgerðum við Strandasel í Breiðholti.

RÚV greinir frá og hefur það eftir sjónarvotti að svo virðist sem hinn handtekni hafi ekið upp á gras við götuna og merki séu um að lögregla hafi ekið utan í bíl mannsins til að stöðva hann.

Fjórir lögreglubílar voru á vettvangi og lá sá handtekni á maganum á götunni með lögreglumann ofan á sér.

Engar upplýsingar hafa fengist frá lögreglu um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×