Óttast slysahættu vegna kinda Freyr Bjarnason skrifar 12. september 2014 07:00 Virgill Scheving Einarsson er óánægður með að hólfið fyrir kindurnar hafi ekki verið lagfært. Fréttablaðið/Valli
Feðgar frá Vatnsleysuströnd segja að Vegagerð ríkisins hafi svikist um að hafa eftirlit með hólfi fyrir kindur sem er á milli Reykjanesbrautar og Vatnsleysustrandar. Kindurnar þeirra eru um áttatíu talsins og sleppa iðulega út í gegnum göt á girðingunni sem þeir segja að Vegagerðin hafi ekki látið gera við. „Hólfið heldur ekki fé, það er bara eins og gatasigti. Því hefur ekki verið haldið við í tíu ár,“ segir Virgill Scheving Einarsson, landeigandi á Efri-Brunnastöðum, orðinn þreyttur á gangi mála. Sonur hans, Kristmundur, á kindurnar sem hafa verið geymdar bæði í þessu hólfi og í Grindavík. Kindurnar hans, sem og annarra sem hafa verið með kindur í hólfinu, hafa margoft sloppið úr því. Þær hafa fundist á beit við Reykjanesbrautina en brautin liggur þvert yfir land þriggja bæja á Vatnsleysuströnd, þar á meðal Efri-Brunnastaða. Beitarhólfið sjálft er skammt frá afleggjaranum í Voga og liggur girðing meðfram Reykjanesbrautinni á tvö til þrjú hundruð metra belti. Saman ætla feðgarnir að reka fé í hólfið 20. september næstkomandi. „Þá komum við til með að reka féð í hólf sem heldur ekki. Ég óttast mest slysahættu vegna þess að þær sleppa alltaf út á Reykjanesbrautina,“ segir Kristmundur. Faðir hans, Virgill, bendir á að bílar aki þar um á mikilli ferð. „Lögreglan í Keflavík er alltaf að hringja og segja að það séu kindur fyrir ofan Voga. Núna ætlum við að sleppa þeim lausum í hólfin. Vegagerðin er ábyrg, ekki við,“ segir hann. Fyrir tveimur vikum sendi Virgill Vegagerðinni og innanríkisráðuneytinu bréf þar sem hann óskaði eftir því að Vegagerðin stæði við samning sem þeir segja að hún og sveitarfélagið Vogar hafi gert við landeigendur á Vatnsleysuströnd árið 1994 um að eftirlit yrði með hólfinu. „Það er bagalegt að það skuli hafa verið gerður skriflegur samningur, sem ekki hefur verið staðið við,“ segir Virgill og bætir við að Landgræðsla ríkisins hafi skaffað áburð fyrir beitarhólfið en enginn hafi komið með hann síðustu fimm til sex ár.Vegagerðin staðið við samkomulagið Svanur G. Bjarnason, svæðisstjóri hjá Vegagerð ríkisins, kannast við að hafa séð tölvupóstinn sem Virgill sendi. Hann segir að samningsdrög séu til um gerð beitarhólfs fyrir búfé milli sveitarfélagsins Voga og Vegagerðarinnar frá árinu 2008. „Þar kemur fram að Vegagerðin ætlaði að girða ákveðinn kafla frá Reykjanesbraut niður undir Vatnsleysustrandarveg sem hún gerði. Að öðru leyti snýr þetta að sveitarfélaginu sem sér um og kostar viðhald girðinga og hefur eftirlit með að búfjáreigendur virði bann við lausafjárgöngu. Vegagerðin hefur því staðið að fullu við sinn þátt í þessu samkomulagi frá 2008,“ segir Svanur. Ekki náðist í bæjarstjóra Voga í gær.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Sjá meira