Metfjölgun erlendra ferðamanna á Landspítalanum Sveinn Arnarsson skrifar 12. september 2014 07:00 Aukin umsýsla er við erlenda ferðamenn Fréttablaðið/Vilhelm
Heimsóknum erlendra ferðamanna á Landspítalann hefur fjölgað verulega fyrstu átta mánuði ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra. 252 erlendir ferðamenn hafa innritast á legudeildir og hefur samanlagður legudagafjöldi náð 1406 dögum, samanborið við 154 erlenda ferðamenn á sama tíma í fyrra upp á 976 legudaga. Í júlí og ágúst leggjast að jafnaði tveir erlendir inn á Landspítalann, á degi hverjum. Að sama skapi hefur komum ferðamanna á dag-, göngu- og bráðadeild spítalans fjölgað mjög. Aukning á fjölda einstaklinga er 54 prósent. 2.590 erlendir ferðamenn hafa komið á deildirnar fyrstu átta mánuði ársins samanborið við 1.645 ferðamenn árið áður. Þessir 2.590 erlendu ferðamenn hafa komið 4.853 sinnum á bráða-, dag- eða göngudeildir. Sumir þeirra koma oftar en einu sinni sem skýrir mismuninn milli fjörlda ferðamanna og fjölda koma. Athygli vekur að 1719 komur eru skráðar í bækur Landspítalans á tveimur stærstu ferðamannamánuðum ársins, júlí og ágúst. Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir sýkingarvarnar, segir aukinn kostnað geta falist í því að sinna erlendum ferðamönnum. „Hafi þeir verið á erlendum sjúkrahúsum síðastliðna sex mánuði þurfa þeir að fara í einangrun vegna bakteríu sem eru ónæmar fyrir ákveðnum tegundum sýklalyfja. Þessu fylgir meiri umsýsla og meiri kostnaður. Hver sjúklingur þarf þá að fara í einbýli og er sinnt á ákveðinn hátt sem krefst hlífðarbúnaðar.“María Heimisdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítalans.Aukin umsýsla við erlenda ferðamenn María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítalans segir mikla vinnu á bak við hvern erlendan sjúkling og að umsýslan sé ívið meiri en við íslenska sjúklinga. „Það er heilmikil pappírsvinna í kringum erlenda sjúklinga og mun meiri en þá innlendu. Við verðum að tryggja þa að fá allar upplýsingar til að hægt sé að fá greiðslur frá erlendum tryggingafélögum sjúkling og þessi aukna umsýsla kostar landspítalann mikla peninga. Við sjáum mikla aukningu í komum erlendra ferðamanna til okkar í júlí og ágúst. Við hinsvegar látum þessa vinnu ekki hafa áhrif á þjónustu við sjúklinginn sem er aðalatriðið en á endanum þarf að taka þetta allt saman svo landspítalanum berist greiðslur frá erlendum tryggingafélögum sjúklinga.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira