Gunnar Bragi segir Rússa hafa skapað ótryggt ástand í Evrópu Atli Ísleifsson skrifar 12. september 2014 14:39 Utanríkisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna komu saman til fundar í Tallinn í dag. Mynd/Utanríkisráðuneyti Eistlands „
Rússnesk stjórnvöld hafa með inngripi í málefni Úkraínu skapað ótryggt ástand í Evrópu. Alþjóðalög hafa verið þverbrotin með ólöglegri innlimun Krímskaga í Rússland og stefna Rússlands grefur undan stöðugleika í allri álfunni,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sem tók þátt í fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í eistnesku höfuðborginni Tallinn í dag. Gunnar Bragi segir Eystrasaltsríkin öll eiga landamæri að Rússlandi og vilji eiga í vinsamlegum samskiptum við þarlend stjórnvöld en þeim er verulega órótt vegna stöðunnar sem nú er uppi. „Við stöndum þétt að baki grönnum okkar í Eistlandi, Lettlandi og Litháen og krefjumst þess að fullveldi þeirra sé ávallt að fullu virt," segir Gunnar Bragi. Öryggishorfur í Evrópu var helsta umfjöllunarefni fundar ráðherranna. Gunnar Bragi segir brýnt að hvergi verði kvikað frá þeim grundvallargildum sem eru leiðarljós í utanríkisstefnu ríkjanna, virðingu fyrir alþjóðalögum, lýðræði, mannréttindum og réttarríkinu. Hann segir mikla samstöðu ríkja í hópi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna og sem fyrr valdi framferði Rússlands í Úkraínu áhyggjum. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að ráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna lýsi þungum áhyggjum af fangelsun eistnesks lögreglumanns sem var numinn á brott af rússneskum öryggissveitum innan landamæra Eistlands 5. september síðastliðinn. „Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherranna eru rússnesk stjórnvöld hvött til þess að leysa lögreglumanninn þegar í stað úr haldi og tryggja að hann snúi heilu og höldnu heim til Eistlands. Ánægja er með niðurstöðu leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Wales í síðustu viku þar sem samstaða bandalagsríkja var áréttuð með skýrum hætti, viðbragðsáætlanir bandalagsins efldar og ákvarðanir teknar um aukna viðveru í austanverðri Evrópu. Mikilvægi samstarfsríkja sem standa utan Atlantshafsbandalagsins var jafnframt undirstrikuð á leiðtogafundinum. Þar staðfestu Finnland og Svíþjóð áframhaldandi náið samstarf við bandalagið sem styrkir enn frekar tengsl Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála. Ráðherrarnir ræddu uppgang ISIL hryðjuverkasamstakanna, þá ógn sem af þeim steðjar og með hvaða hætti alþjóðasamfélagið getur brugðist við þeim hroðaverkum sem samtökin hafa framkvæmt. Þá var rætt um orkumál í Evrópu, hvernig auka megi þátt endurnýjanlegra orkugjafa, tryggja betur orkuöryggi álfunnir og styrkja innviði sem stuðla að skilvirkari orkumarkaði,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira