Innlent

Stækka hjúkrunarheimilið Lund á Hellu

Atli Ísleifsson skrifar
Heilbrigðisráðherra og sveitarstjórar Rangárþings ytra og Ásahrepps undirrituðu í gær samkomulag um framkvæmdina.
Heilbrigðisráðherra og sveitarstjórar Rangárþings ytra og Ásahrepps undirrituðu í gær samkomulag um framkvæmdina. Mynd/Velferðarráðuneytið
Fyrsta skóflustungan að framkvæmdum við viðbyggingu hjúkrunarheimilisins Lundar á Hellu var tekin í gær. Heilbrigðisráðherra og sveitarstjórar Rangárþings ytra og Ásahrepps undirrituðu í gær samkomulag um framkvæmdina, en með byggingunni verður tvíbýlum á heimilinu útrýmt og sköpuð vönduð aðstaða fyrir heilabilaða heimilismenn.

Í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu segir að í nýju byggingunni verði litlar íbúðir fyrir átta heimilismenn og sé einingin hönnuð með þarfir heilabilaðra í huga. „Hjúkrunarrýmum á Lundi fjölgar ekki við framkvæmdina, heldur verður aukið rými nýtt til að útrýma tvíbýlum og bæta þannig aðstæður allra íbúa heimilisins.

Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er um 238 milljónir króna og er fjármögnunin á hendi Framkvæmdasjóðs aldraðra, sveitarfélaganna tveggja sem að heimilinu standa og ríkisins.“

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra og Björgvin G. Sigurðsson, sveitarstjóri Ásahrepps undirrituðu samning um framkvæmdina og tóku að því loknu fyrstu skóflustungu að byggingunni ásamt Drífu Hjartardóttur, formanni stjórnar Lundar og Margréti Ýrr Sigurgeirsdóttur hjúkrunarforstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×