Matur myndi hækka um 33 þúsund á ári hjá hinum tekjulægstu Linda Blöndal skrifar 12. september 2014 19:19
Rannsóknasetur verslunarinnar á Bifröst birti í dag tölur um útgjaldaaukningu heimilanna eftir tekjuhópum vegna hækkunar virðisaukaskatts á matvæli úr 7% í 12%, eins og fjárlagafrumvarpið boðar. Miðað við neyslukönnun Hagstofunnar frá 2011 og 2012 eyða ólíkir tekjuhópar hlutfallslega svipað miklu í matarkaup eða frá 14,5% af útgjöldum tekjulægstu heimilanna til 15,3%. Heimili landsins eyða að meðaltali 15 prósentum af útgjöldum sínum í matvæli.Hækkar um 42 þúsund að meðaltali Þegar búið er að leiðrétta fyrir verðlag í dag hækkar matur í krónum mest eftir því sem hærri tekjurnar eru sem gæti skýrst af ólíkum lífsstíl tekjuhópanna. Meðalhækkun á útgjöldum hvers heimilis verður 42 þúsund krónur á ári. Í útreikningunum er ekki tekið tillit til mótvægisaðgerða eins og til dæmis lækkun sykurskatts.Meiri munur miðað við ráðstöfunartekjur Myndin lítur öðruvísi út ef miðað er við ráðstöfunartekjur. VR hefur bent á að launafólk með lægstu tekjurnar verji í dag 17,6 prósentum ráðstöfunartekna sinna í matvörur á móti 10,7 prósent hjá þeim sem hafa hæstu tekjurnar. ASÍ hefur gefið út að tekjulægstu heimilin noti meira eða 20 prósent ráðstöfunartekna sinna til kaupa á mat á meðan tekjuhæstu heimilin noti einungis tíunda hluta tekna sinna í mat og drykk.Matarkarfan ríflega 500 krónum hærri Stöð tvö fyllti í dag í matarkörfu á ósykruðum mat sem kostaði rúmlega 9800 krónur og er 7% VSK af þeirri körfu 647 krónur. Eftir hækkun myndi þessi sama karfa kosta 10.308 krónur og vaskurinn yrði rúmlega 1100 kr. Heildaráhrifin jákvæð Áhrif fjárlagafrumvarpsin í heild eru þó jákvæðari en VR og ASÍ hafa talið, að mati Viðskiptaráðs sem birtist í dag grein þar sem segir að teljulægstu heimilin muni hagnast á móti á niðurfellingu vörugjalda eins og boðað er. Tekjulægstu heimilin kaupi ekki einungis hlutfallslega mest af matvælum fyrir ráðstöfunarfé sitt heldur líka vörur sem losna muni undan skatti.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fleiri fréttir Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Sjá meira