Háskóli Íslands í samstarf við kínverskan háskóla Atli Ísleifsson skrifar 12. september 2014 15:51 Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Chen Xu, forseti háskólaráðs Tsinghua-háskóla í Kína, undirrita samstarfssamning milli háskólanna í húsakynnum Tsinghua. Á myndinni eru einnig fulltrúar Tshinghua og Ragnar Baldursson, sendifulltrúi í sendiráði Íslands í Peking. Mynd/Háskóli Íslands
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hefur undirritað samstarfssamning við Tsinghua-háskólann í Kína sem í alþjóðlegu gæðamati er almennt metinn annar áhrifamesti háskóli í Kína, næst á eftir Peking-háskóla. Kristín og Chen Xu, forseti háskólaráðs Tsinghua-háskóla í Kína, undirrituðu saminginn í nýlegri heimsókn Kristínar til höfuðborgarinnar Beijing. Í tilkynningu frá Háskólanum segir að Chen Xu, sem er prófessor í rafmagnsverkfræði, sé ein af fáum konum í Kína sem eru í forsvari fyrir háskóla. Með samningnum opnast möguleikar á stúdentaskiptum, kennaraskiptum og samstarfi um skilgreind rannsóknaverkefni. „Tsinghua er einkum þekktur sem tækniháskóli en hefur smám saman aukið breidd í námsframboði og rannsóknum og starfar nú á sviðum hug-, félags- og menntavísinda auk heilbrigðis-, verkfræði og tæknigreina. Í alþjóðlegu gæðamati er Tsinghua almennt metinn annar áhrifamesti háskóli í Kína, næst á eftir Peking-háskóla. Tsinghua-háskóli var stofnaður árið 1911, sama ár og Háskóli Íslands, en á þeim tíma var Qing-keisaradæmið að líða undir lok í Kína. Kristín heimsótti læknaskólann við Tsinghua, m.a. deild í verkfræðilegri læknisfræði, þar sem unnið er þverfræðilega að verkefnum sem snúa að greiningu sjúkdóma og meðferð þeirra. Mikil áhersla er lögð á nýsköpun og tækniyfirfærslu og hafa mörg þessara verkefna leitt til stofnunar sprotafyrirtækja. Tsinghua vinnur í nánu samstarfi við Johns Hopkins háskólann í Bandaríkjunum á þessu sviði. Á næstunni verður opnað nýtt háskólasjúkrahús sem mun starfa í nánum tengslum við Tsinghua. Auk læknisfræðilegrar verkfræði kom fram mikill áhugi á samstarfi við Háskóla Íslands á sviðum raunvísinda, bókmennta, kynjafræði og lyfjafræði en lyfjafræðideild er ein nýjasta deildin í Tsinghua. Kristínu Ingólfsdóttur var boðið til Kína til að flytja erindi á alþjóðlegri ráðstefnu kvenrektora. Erindi hennar fjallaði um mikilvægi samstarfs í menntun, vísindum og nýsköpun þvert á menningar- og tungumálasvæði. Ráðstefnuna sóttu kvenrektorar alls staðar að úr heiminum auk fjölda kínverskra kvenna sem koma að stjórnun mennta- og jafnréttismála í Kína. Frumkvæði að ráðstefnunni hafði Liu Jinan, fyrrverandi rektor Communication University of China, CUC, en þetta var sjötta ráðstefnan af þessu tagi sem hún hefur staðið fyrir í samstarfi við kínversk menntamálayfirvöld og UNESCO,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira