„Árás og illkvittni að krossfesta sárasaklausa konu“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. júlí 2014 21:52 Kleópatra Kristbjörg Stefánsdóttir stýrði Gunnars Majonesi hf. frá 2006-2014. Nú stýrir hún Gunnars ehf. „
Ef þetta stríð heldur áfram þá mun ég skrifa meira og nafngreina alla, nafngreina níðinginn,“ segir Nancy R. Gunnarsdóttir í pistli sem hún ritar á Speglinum. Nancy erfði fyrirtækið Gunnars Majones, sem stofnað var árið 1960, ásamt systur sinni Helen og eftirlifandi eiginkonu föður þeirra, Gunnars Jónssonar, þegar hann féll frá árið 1998. Þær tóku við rekstrinum sem hafði gengið vel en lentu í vandræðum. Fengu þær Kleópötru Kristbjörgu Stefánsdóttur til liðs við sig árið 2006. Í júní síðastliðnum var fyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið Gunnars ehf., sem er alfarið í eigu Kleópötru, tók við rekstri Gunnars Majoness og mun áfram framleiða majones og sósur fyrirtækisins. Níðingurinn sem Nancy vísar til er ónafngreindur aðstandandi þeirra systra. Sá sagði í viðtali við DV á dögunum að þær systur hefðu gjörbreyst á undanförnum árum. Komið hafi verið að þeim á erfiðum tíma þegar auðvelt sé að ráðskast með fólk. „Þeir trúa eitthvað svakalega mikið á hana. Þetta hefur Kleópatra nýtt sér,“ er haft eftir aðstandanum sem sagður er náinn. Nancy segir umræddan aðstandanda hafa starfað í fyrirtækinu en verið látinn taka pokann sinn fyrir tveimur árum. Síðan hafi hann hlaupið með gróusögur í DV. Rógburðurinn sé svo andstyggilegur og ærumeiðandi að hún geti ekki þagað lengur. „Og svo er hann svo mikill aumingi að hann þorir ekki að koma (fram) undir nafni þrátt fyrir það að það er augljóst hver hann er,“ segir Nancy. Aðstandandinn sé kraumandi af reiði þar sem hann fái engan arf enda fyrirtækið ekki lengur í eigu fjölskyldunnar. Hann hafi auk þess staðið sig illa í vinnu þar sem hann hafi leikið sér í vinnutölvunni. Fullt tilefni hafi verið til að reka hann. Það hafi Helen, systir hennar, hins vegar ekki samþykkt til að byrja með. Eftir að umræddur ættingi hafi tekið fyrirtækjabíl í leyfisleysi, gert bensínskort fyrirtækisins að eigin neyslukorti og dregið að sér fé hafi hann verið rekinn.Nancy segir fjárglæpamenn í fjölskyldu sinni.Allt alkóhólistar, dópistar og fjárglæpamenn Nancy fer ófögrum orðum um fjölskyldumeðlimi sína í pistlinum. Segir hún annan ættingja einnig hafa dregið að sér fé á sínum tíma en málið hafi verið þaggað niður. „Í fjölskyldunni eru allt alkóhólistar, dópistar meira að segja fjárglæpamenn, tugthúslimur. Gjörið svo vel að rannsaka þá ef þið rengið mig,“ segir Nancy í pistlinum. Þá sé ekki tilefni til að vorkenna eftirlifandi eiginkonu Gunnars. Hún er nú er á níræðisaldri. Segir Nancy að „gamla konan“, eins og hún er kölluð, hafi unnið í fyrirtækinu til áttræðs en verkstjórinn hafi ávalt átt í erfiðleikum með hana. Hún hafi gengið um og öskrað og æpt á alla „haltu kjafti!“ Hafi verkstjórinn reynt að koma tilmælum til hennar hafi hún svarað því til að hún væri eigandinn. Verkstjórinn gæti ekki sagt henni fyrir verkum. Engin ástæða sé til að vorkenna „gömlu konunni“. „Halló! Mörg hundruð fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota í og upp úr kreppu. Eins og að gamla konan ætti ægilega bágt, hún býr nú í lúxsusíbúð, á jörð og sumarhús og fer mörgum sinnum á ári til útlanda.“Gunnars majones.Var í tveimur sértrúarsöfnuðumÍ umfjöllun DV á dögunum um nýja eigandann, Kleópötru Kristbjörgu Stefánsdóttur, kemur fram að hún sé æðstiprestur einhvers konar „sértrúarsafnaðar“. Ekkert er til í því að Kleópatra og Helen tilheyri einhverjum sértrúarsöfnuði að sögn Nancy. Það hafi hún hins vegar sjálf gert um tíma. Reyndar hafi hún verið í tveimur sértrúarsöfnuðum en langt sé um liðið. „Ég var í sértrúarsöfnuði Mirical of Love og svo í öðrum sem var rekinn af Paul Welch og hann var með námskeið út um allan heim og ég elti hann út um allan heim á öll hans námskeið. Þar er sko heilavottur í gangi,“ segir Nancy. Helen, systir hennar, hafi haft áhyggjur af sér og reynt að hjálpa henni en ekkert gengið. Að lokum hafi Helen fengið Kleópötru til að tala við Nancy. Þær hafi bjargað Nancy úr söfnuðinum. „Ég er ekki í sértrúarsöfnuði í dag. En þó ég væri í sértrúarsöfniði þá er það enginn glæpur.“Fannar Ólafsson í leik með körfuboltaliði KR.Systurnar á ofurlaunum Nancy rifjar upp þegar Kleópatra kom fyrst inn í fyrirtækið árið 2006. Hún hafi pínt hana til að aðstoða þær systur en Kleópatra hafi engan áhuga haft á að koma inn í fyrirtækið. „Mér gekk illa að semja við viðskiptavinina og var að missa stóra og mikilvæga kúnna og þeir vildu ekki versla mig því það var einfaldlega ekki hægt að tala við mig. Ég sá fram á það að ef ég missti þessa kúnna þá gæti reksturinn ekki haldið áfram og Kleo gekk mjög vel að semja, enda mjög vel liðin.“ Þær systur hafi ætlað að sjá um reksturinn en svo ráðið Fannar Ólafsson sem framkvæmdastjóra. Hafi verið tekið risastórt lán til að bjarga fyrirtækinu frá gjaldþroti. Launakostnaður hafi verið alltof hár og starfsmenn of margir fyrir svo lítið fyrirtæki. Búin hafi verið til störf fyrir ættingja. „Alltof margir á launaskrá, ásamt gígantísku háu launum okkar systra,“ segir Nancy. Þá hafi fall bankanna og krónunnar haustið 2008 ekki hjálpað til enda flest hráefni flutt inn. Kleópatra hafi tekið við rekstrinum af Fannari 2012 og gert góða hluti. Hún hafi lækkað rekstrarreikninginn árið 2013 frá því sem hafði verið árið 2012. Hins vegar hafi lánin sem tekin voru á sínum tíma gert fyrirtækinu erfitt fyrir sem varð til þess að fyrirtækið varð gjaldþrota nú í sumar.Gunnar Jónsson ólíkur öllum í fjölskyldunni Nancy segist ekki skilja þá árás sem Kleópatra hafi orðið fyrir í fjölmiðlum. Verið sé að krossfesta sárasaklausa konu sem hafi veitt sér aðstoð þegar fyrirtækið þurfti mest á aðstoð að halda. Náni aðstandandinn sé geðveikur alkóhólisti í hefndarhug. „Hann eins og allir aðrir alkohólistar er að drepast úr sjálfselsku sem sér ekkert að sér það er bara eitthvað að öllum hinum. Alkahólisti bendir alltaf á alla aðra en sjálfur er hann fullkominn, veit allt best og kann mest. Það er ekkert að mér og mínum! Það er allt að þér og þínum! Þetta er allt ykkur að kenna!“ Í öllum fjölskyldum er svartur sauður að sögn Nancy. Í hennar fjölskyldu séu þeir þó margir. „Kannski er það þannig alls staðar því þegar maður eldist og þroskast þá sér maður það og hvað þetta samfélag er sjúkt,“ segir hún. Veltir hún fyrir sér hvort ekki megi fara í saumana á blaðamönnum DV. Þeir geti ekki verið syndlausir að mati Nancy og vitnar í Biblíuna, bókina sem hafi bjargað henni. „Sá ykkar sem syndlaus er kastið fyrsta steininum!“ Pistlinum lýkur á nokkrum orðum um Gunnar heitinn Jónsson, föður þeirra systra og nýja fyrirtækið, Gunnars ehf.„Kleópatra er mjög hlý, góð og skemmtileg“ „Gunnar Jónsson stofnaði þetta fyrirtæki og gerði það vel. Hann rak það líka vel enda maðurinn alls ólíkur okkur í þessarri fjölskyldu og mér vitanlega var hann heill og sannur. Hann var maður sem vildi öllum vel og gott gera. Hann vildi aldrei að þetta fyrirtæki færi í okkar hendur( fjölskyldunnar) og var búinn að segja okkur það þegar hann lést,“ segir Nancy. Í fyrirtækinu sé gott starfsfólk sem vilji því vel. Það þrái að bjarga fyrirtækinu Gunnari til sóma og heiðurs. Vörumerkið sé flott, vörumerkið hans Gunnars en ekki þeirra, og vonandi muni það blómstra. „… og það skiptir mig ekki máli hver það er sem fær það til að blómstra. Bara að það blómstri enn á ný.“ Nancy segir að það gleðji sig að það skuli vera Kleópatra sem hafi tekið við fyrirtækinu. Hún sé mjög hlý, góð og skemmtileg. „Hún hefur alltaf viljað fyrirtækinu vel bara vegna Gunnars og hún hefur alltaf viljað halda minningu hans lifandi en fyrir vikið er hún bara krossfest eins og Kristur af geðveikum og siðblindum ættingjum mínum, sem og DV blaðamanna. Alveg furðulegt að þeir skuli alltaf vera krossfestir sem vilja vel.“
Mest lesið Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Erlent „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Innlent Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Innlent Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Erlent Fleiri fréttir Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Sjá meira