Nauðsynlegt að stækka flughlað á Akureyrarflugvelli Heimir Már Pétursson skrifar 16. júlí 2014 19:30
Forsætisráðherra vonar að Alþingi tryggi fjármuni til að hefja stækkun á flughlaðinu á Akureyrarflugvelli á næsta ári. En Ísavia hefur ekki haft fjármagn til að nýta allt það jarðefni sem fellur til við gerð Vaðlaheiðarganga, þótt félagið fái efnið sjálft endurgjaldslaust. Þegar ráðist var í gerð Vaðlaheiðarganga sá menn sér leik á borði að hægt yrði að nota það mikla efni sem kæmi úr göngunum til að stækka flughlaðið á Akureyrarflugvelli. Hins vegar hefur engin fjárveiting fylgt málum þannig að ekki hefur verið hægt að keyra efnið í flughlaðið. Akureyrarflugvöllur er einn þriggja alþjóðaflugvalla á Íslandi en þar eru aðstæður til að taka á móti stórum þotum ekki viðunandi og því þarf að stækka flughlaðið til norðurs þar sem einnig stendur til að byggja nýja flugstöð. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra átti fundi með bæjarfulltrúum og fleiri aðilum á Akureyri í gær vegna málsins. „Það hefur reyndar verið unnin undirbúningsvinna en það er alveg rétt að það hefur skort fjármagn til að klára verkið. Hins vegar gefst núna smá tímabil, níu mánuðir eða svo, til þess að undirbúa það. Vegna þess að (bor) menn eru að fara að færa sig yfir í Fnjóskadalinn og þar er ekki vandamál að losna við efnið eða geyma það,“ segir forsætisráðherra. Sá tími hljóti að verða nýttur til að undirbúa framhaldið. Alþingi hljóti sömuleiðis að skoða þetta mál þegar það kemur saman í haust. „Því menn hljóta að vilja nota tækifærið til að nýta þetta efni í það að stækka flughlaðið sem er nauðsynlegt til þess að flugvöllurinn nýtist sem skyldi. Það eru mikil sóknarfæri í því og væri raunar æskilegt fyrir alla að það yrði t.d. meira um millilandaflug til og frá Akureyri. Álagið á suðvesturhluta landsins í ferðaþjónustu t.d. er orðið mjög mikið,“ segir Sigmundur Davíð. En á sama tíma gæti svæðið í kring um Akureyri tekið á móti mun fleiri ferðamönnum. Mörg brýn verkefni bíði í samgöngubótum en þarna sé einstakt tækifæri vegna gangnagerðarinnar til að nýta allt það efni sem til fellur á hagkvæman hátt. Þá hafi göngin, sem ráðherra skoðaði í gær, hafa mikil og jákvæð áhrif. „Og er gríðarlega mikill liður í því að stækka þetta atvinnusvæði og styrkja enn. Það er áhyggjuefni hversu mikið af fjárfestingu og uppbyggingu innviða og fólksfjöldanum hefur verið að þjappast saman á mjög afmörkuðum hlta landsins. En samgöngubætur eins og þær sem við erum að fylgjast með hér (Vaðlaheiðargöng) hjálpa mjög til við að rétta hlut landsbyggðarinnar,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna Sjá meira