Líkur á saurmengun í Þingvallavatni sterkar Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 3. júní 2014 20:39
Sterkar líkur eru á að saurgerlar á borð við E.coli séu í Þingvallavatni. Bág staða fráveitumála í þjóðgarðinum skapar mikla hættu þegar líffræðilegur fjölbreytileiki vatnsins er annars vegar.. Þingvallavatn er einstakt, grunnvatnsháð vistkerfi þar sem örverur þrífast við öfgakenndar aðstæður og breytilegar. Kjartan Guðmundson, líffræðingur og meistaranemi í umhverfis- og auðlindafræði, rýnir í örveruflóru vatnsins í meistaraprófsritgerð sinni. Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar og var studd af Matís. Niðurstöður sýnatökunnar varpa ljósi á fjölbreytt örverulíf í vatninu en einnig möguleg áhrif mannabyggðar. Saurgerlar fundust í sýnum sem tekin voru í Þingvallavatni, nánar til tekið E.coli-baktería. Þessi saurmengun fannst í fimm sýnum sem tekin voru í grennd við mannabústaði. Brýn þörf er á að framkvæma frekari rannsóknir í þessum efnum. „Þingvallavatn er gríðarstórt og því erfitt að átta sig á hvaðan saurmengunin kemur. Staðreyndin sem blasir við er að hér í sveitinni eru 600 bústaðir sem uppfylla ekki kröfur um tveggja þrepa hreinsun á skólpi. Það sem slíkt setur spurningarmerki við heilbrigði drykkjarvatns á svæðinu. Þörf er á ítarlegri rannsóknum á útbreiðslu saurgerla í Þingvallavatni. Þar á meðal þarf að varpa frekara ljósi á hvaðan þessar bakteríur berast ásamt því að skima fyrir bendiörverum á borð við Nóróvírus í vatninu og rýna í áhrif þeirra á örveruflóru Þingvallavatns. Í lögum um þjóðgarðinn á Þingvöllum segir: Innan þjóðgarðsins er óheimilt að gera nokkuð það sem getur spillt eða mengað vatn þar, bæði vatn á yfirborði og grunnvatn. Rúmlega fimmtán þúsund kafarar, hvaðanæva að úr heiminum, köfuðu í Silfru á síðasta ári. Það sem vekur sérstaka athygli er að það er engin krafa eða reglugerð sem skipar fólki að hreinsa kafarabúnað sem fluttur er til landsins. Slíkar reglur eiga við um innflutt reiðtygi og veiðibúnað. Þannig gæti kafari kafað í Viktoríuvatni í Afríku og síðan kafað í Silfru án þess að ganga úr skugga um að engar framandi lífverur séu með í för. Þriðjungur þeirra sem svömluðu í Silfru á síðasta ári voru í köfun, hinir í snorkli. Vart er hægt að ímynda sér fallegri köfunarstað en Silfru en þessi mikla ásókn hefur þegar sett sinn svip á umhverfið, enn sem komið er er óljóst hver áhrifin eru á sjálft lífríkið í þessu einstaka stöðuvatni.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira