Aðeins ein kona formaður Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. september 2014 11:48 Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Vísir/Vilhelm
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi á fundi borgarstjórnar í gær hversu bágur hlutur kvenna er í úthlutun embætta. Júlíus Vífill Ingvarsson vakti athygli á því að í fjórum af fimm stærstu ráðum borgarinnar (ráð í flokki 1) gegna karlar formennsku. Greidd er hærri þóknun fyrir setu í ráðum í flokki 1 en fyrir setu í öðrum ráðum og nefndum á vegum borgarinnar. Björk Vilhelmsdóttir gegnir formennsku í velferðarráði en formenn annarra ráða í flokki 1, þ.e. borgarráðs, skóla-og frístundaráðs, umhverfis-og skipulagsráðs og nýs stjórnkerfis-og lýðræðisráðs, eru karlar. Júlíus Vífill segir nýjan meirihluta ekki senda góð skilaboð til kvenna í borgarstjórn þar sem umrædd ráð eru þau umsvifamestu í stjórnkerfinu. Það séu gamaldags og úrelt vinnubrögð að karlmenn fari að nær öllu leyti með formennsku í þeim. Nýr meirihluti hafi mikið talað fyrir því að útrýma þurfi kynbundnum launamun og auka þátttöku kvenna í stjórnmálum. Júlíus segir alla í borgarstjórn sammála um nauðsyn þess. "Við stjórnmálamenn eigum því að ganga á undan með góðu fordæmi en með því að veita konum minni hlutverk og minni ábyrgð í ráðum borgarinnar er meirihlutinn einmitt ekki að gera slíkt," segir Júlíus. Aðspurður um hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hafi skipað í umrædd ráð segir Júlíus flokkinn hafa gætt þess að skipa jafnmargar konur og karlar. Meirihlutinn lagði fram bókun í lok borgarstjórnarfundar þar sem bent er á að ef ráð í flokki 2 séu tekin með eru hlutföll kynjanna jöfn, en ekki náðist í Sóleyju Tómasdóttur, forseta borgarstjórnar, við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira