Götuverð LSD skammts 3.000 krónur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. september 2014 17:12 Þórarinn Tyrfingsson er ánægður með vinnu tollsins.
Þeir skammtar af LSD sem lagt hefur verið hald á það sem af er ári hafa komið í nokkrum mörgum póstsendingum. Samkvæmt upplýsingum frá embætti tollstjóra eru sendingarnar nokkuð stórar ef horft er til fjölda skammta í hverri sendingu. Tollurinn hefur lagt hald á tæplega 8.000 skammta af LSD og afleiðum þess það sem af er ári, en það er meira en haldlagt hefur verið sl. 4 ár samtals. Afleiður LSD eru öðruvísi samsettar en sjálft LSD en hafa nákvæmlega sömu virkni. „Umræðan um þessi efni og hversu hættuleg þau eru hefur ekki verið mikil upp á síðkastið. Þá rjúka tölurnar upp. Það er erfitt að meta það hvort að markaðurinn sé að stækka eða hvort framboðið sé að aukast, nema hvort tveggja sé. En við erum ánægðir með að hafa náð þessum skömmtum,“ segir Kári Gunnlaugsson, yfirtollvörður. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, hefur ekki orðið var við að mikið magn af LSD sé í umferð. „Það er í samræmi við seinustu ár en meira af efninu var í umferð á árunum fyrir hrun,“ segir Þórarinn. Hann bætir við að götuverð eins skammts af LSD sé um 3000 krónur. Hann segir verðið sambærilegt við eitt gramm af kannabis eða eina e-pillu. Samkvæmt því er heildarvirði þess sem tollurinn hefur lagt hald á tæpar 24 milljónir króna. Þórarinn er sérstaklega ánægður með vinnu tollsins sem virðist hafa leitt af sér hversu lítið af efninu hefur verið í umferð. Aðspurður hvort að hið aukna magn innflutnings bendi til að eftirspurn eftir LSD hafi aukist segir Þórarinn, líkt og Kári, að erfitt sé að leggja mat á það.
Tengdar fréttir Sprengja í innflutningi á LSD: 8000 skammtar á átta mánuðum Tollverðir hafa lagt hald á fleiri skammta af LSD á fyrstu átta mánuðum ársins en síðastliðin fjögur ár til samans. 3. september 2014 10:13 Mest lesið Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Truflanir víða vegna eldingaveðurs Innlent Fleiri fréttir Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Sjá meira
Sprengja í innflutningi á LSD: 8000 skammtar á átta mánuðum Tollverðir hafa lagt hald á fleiri skammta af LSD á fyrstu átta mánuðum ársins en síðastliðin fjögur ár til samans. 3. september 2014 10:13