Málsmeðferðartími hælisumsókna ekki lengri en 90 dagar Atli Ísleifsson skrifar 3. september 2014 20:15 Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir það ánægjulegt að sjá árangurinn af þeirri vinnu sem starfsfólk ráðuneytisins og Útlendingastofnunar hafi lagt á sig síðastliðið ár. Vísir/Daníel
Málsmeðferðartími hælisumsókna verður að meðaltali ekki lengri en 90 dagar á hvoru stjórnsýslustigi í málum sem hafa komið inn frá og með 25. ágúst. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá innanríkisráðuneytinu. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir það ánægjulegt að sjá árangurinn af þeirri vinnu sem starfsfólk ráðuneytisins og Útlendingastofnunar hafi lagt á sig síðastliðið ár. ,,Við erum búin að ná gríðarlegum árangri í þessum málaflokki á skömmum tíma og munum halda áfram að bæta umgjörð og aðbúnað enn frekar á næstu mánuðum.“ Í tilkynningunni segir að þetta hafi verið eitt megin markmiða með breytingum á útlendingalögum síðastliðið vor. „Með þeim breytingum og breyttu verklagi í hefur náðst árangur í að auka skilvirkni og vanda verklag við meðferð hælisumsókna undanfarin misseri.“ Rauði krossinn á Íslandi mun tímabundið taka við því hlutverki að gæta hagsmuna hælisleitenda við umsókn þeirra um hæli. „Einstaka mál gætu þó sætt undantekningum varðandi málshraða vegna sérstaka aðstæðna en Útlendingastofnun mun í samvinnu við Rauða krossinn halda áfram að vinna að bættu verklagi á næstu vikum og mánuðum.“ Í fréttatilkynningunni kemur fram að Rauði krossinn hafi tekið að sér aðra þjónustu við hælisleitendur og meti reglulega aðbúnað hælisleitenda, sinnii heimsóknarþjónustu og félagsstarfi samkvæmt samningi sem gerður var milli innanríkisráðuneytisins og Rauða krossins. „Rauði krossinn heldur jafnframt úti alþjóðlegri leitarþjónustu fyrir hælisleitendur og flóttamenn til þess að hafa uppi á týndum ættingjum sínum og endurvekja samband innan fjölskyldna sem hafa sundrast þegar slíkt er mögulegt. Ljóst er að sumir hælisleitendur hafa beðið lengi eftir niðurstöðu í máli sínu og segir að við mat á þeim umsóknum um hæli verði tekið tillit til þess og leitast við að hraða málum þar sem ábyrgð á því er stjórnvalda. Eigi það sérstaklega við börn og aðra umsækjendur í viðkvæmri stöðu. „Á næstu dögum verður nýr vefur Útlendingastofnunar tekinn í gagnið sem á að auðvelda útlendingum aðgang að upplýsingum um málefni útlendinga hér á landi og tryggja skilvirkari samskipti við stofnunina. Eru þær ráðstafanir mikilvægar í þeim umbótum sem unnið er að áfram,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira