Mýflug leyst undan 44 milljóna kvöð um bankaábyrgð vegna sjúkraflugs Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. janúar 2014 07:00 Umfjöllun um flugslysið á Akureyri 5. ágúst og kringumstæður þess hófst í Fréttablaðinu 6. janúar síðastliðinn.
Mýflug hefur fengið 44 milljóna króna afslátt af ábyrgðaryfirlýsingu sem félaginu er skylt að leggja fram vegna samnings síns um sjúkraflug fyrir ríkið. „Mýflug hefur sinnt skyldum sínum án vanefnda frá upphafi viðskipta,“ segir í svari Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um ástæður þess að upphæð ábyrgðaryfirlýsingarinnar var lækkuð úr 88,5 milljónum króna í 44 milljónir. Bankaábyrgðin er frá Sparisjóði Suður-Þingeyinga.Engin skjöl um 44 milljóna króna ákvörðun Þá segja Sjúkratryggingar að einnig sé litið til þess að Mýflug hafi til ráðstöfunar tvær varaflugvélar í stað einnar varavélar sem kröfur í útboði kváðu á um. „Sjúkratryggingar Íslands hafa því fallist á þá röksemd að líkur á vanefndum sem ábyrgðinni er ætlað að dekka, svo sem vegna rekstrarstöðvunar eða sambærilegra atriða, séu minni en upphaflega var gert ráð fyrir,“ segir í svari stofnunarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá SÍ er ekkert skjal til um þessa ákvörðun sem virðist hafa verið endanlega staðfest fyrir tveimur vikum. „Fimmtudaginn 9. janúar síðastliðinn var lokið við að undirrita samkomulag um breytingar á samningnum milli SÍ og Mýflugs sem fyrrgreind ákvörðun byggir á,“ hljóðar svar Sjúkratrygginga þegar spurt er hvort ekkert sé skráð hjá stofnuninni um þá ákvörðun að lækka ábyrgðaryfirlýsingu Mýflugs.Fjármálaráðuneytið sagði sjúkrabúnað tapaðan Eins og áður hefur komið fram í Fréttablaðinu var samþykkt með fjáraukalögum á Alþingi fyrir jól að greiða nýjan 43 milljóna króna sjúkrabúnað í stað þess sem ríkið átti og eyðilagðist er sjúkraflugvél Mýflugs fórst á Akureyri í ágúst. Upphæðin var færð á liðinn „tapaðar kröfur og tjónabætur“ hjá ríkinu. „Í því tilviki sem um ræðir var ljóst að búnaðurinn var tapaður,“ svarar fjármálaráðuneytið um ástæður þess.Með nýrri breytingu á sjúkraflugssamningi Mýflugs fær félagið að framvísa helmingi lægri bankaábyrgð en áður.Í samningi við Mýflug er þó tekið fram að félagið beri ábyrgð á tjóni sem SÍ eða aðrir verði fyrir við framkvæmd sjúkraflugsins. Ekki var gerð tilraun til að innheimta þessa kröfu gagnvart Mýflugi og ákvæðisins var hvorki getið í minnisblaði heilbrigðisráðherra til fjármálaráðherra né í greinargerð sem lögð var fyrir Alþingi. Heilbrigðisráðuneytið segir ákvæðið ekki hafa verið nefnt í minnisblaðinu því það sé hefðbundið ákvæði slíkra samninga sem staðfestir séu af fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem sé því kunnugt um þessa grein samningsins. Er heilbrigðisráðuneytið var spurt um málið fyrr í þessum mánuði sagði það rétt að samkvæmt samningi hafi Mýflugi borið ábyrgð á meðferð sjúkrabúnaðarins. „Í þessu máli er ekki augljóst að ríkið eigi kröfu á hendur Mýflugi vegna búnaðarins. Þessi mál verða skoðuð í heild en ekki er tímabært að fullyrða neitt að svo stöddu,“ útskýrði ráðuneytið 7. janúar. Eftir það hefur ráðuneytið sagst ekki mundu tjá sig frekar um hugsanlega kröfu á hendur Mýflugi á meðan málið sé til skoðunar.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Fleiri fréttir Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Sjá meira