Hafa trassað að innleiða Evrópulöggjöf í rúm sjö ár Sveinn Arnarsson skrifar 4. september 2014 07:00 ESA krefur iðnaðarráðuneytið svara á meintum vanefndum á innleiðingu orkutilskipana ESB
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur sent íslenskum stjórnvöldum erindi þar sem útskýringa er krafist á því hvers vegna ekki sé búið að innleiða Evrópulöggjöf um raforku hér á landi. Sjö ár eru síðan stjórnvöld áttu að innleiða löggjöfina. Erindi ESA kemur í kjölfar kvörtunar sem stofnuninni barst þann 8. ágúst síðastliðinn. Í kjölfarið sendi ESA bréf til iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins þar sem ráðuneytið er krafið svara um ýmis atriði er varða innleiðingu Evrópulöggjafar í orkumálum áður en formleg athugun verður hafin. Komist ESA að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld hafi ekki uppfyllt skuldbindingar sínar gagnvart EES getur eftirlitsstofnunin stefnt íslenskum stjórnvöldum fyrir Evrópudómstólinn. Kvörtunin til ESA snýst um að íslensk stjórnvöld hafi ekki innleitt að fullu löggjöf um innri markað raforku. Sú löggjöf var samþykkt 2005 og var EES-ríkjum gefinn frestur til 1. júní 2007 til að innleiða hana.Mynd/VilhelmDr. Gunnar Þór Pétursson, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti, segir það ekki óvanalegt að ESA fái inn á borð til sín kvartanir sem þessar. Það sé þó sjaldgæft að kvartanir berist vegna vanefnda á innleiðingum tilskipunar sjö árum eftir að hún átti að taka gildi. „Við vitum af svonefndum innleiðingarhalla hér á landi þar sem við Íslendingar erum einna slakastir EES-ríkjanna í að innleiða Evrópulöggjöfina tímanlega. Hvað raforkulöggjöfina snertir þá hefur Ísland innleitt hluta af raforkulöggjöfinni. Ef svo reynist að íslensk stjórnvöld hafi ekki innleitt alla löggjöfina þá gæti það verið brot á EES-sáttmálanum,“ segir Gunnar Þór. Hann segir að sá möguleiki sé fyrir hendi að brot sem þetta geti haft bótaskyldu í för með sér, ef einstaklingar eða fyrirtæki hafa orðið fyrir tjóni.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira