Óljósar reglur um gjafir til bæjarfulltrúa Linda Blöndal skrifar 4. september 2014 19:15
Sveitarfélög eiga samkvæmt lögum að setja sér siðareglur og haga störfum sínum í samræmi við þær, þar segir m.a.„öllum kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn og nefndum og ráðum sem sveitarstjórn skipar ber að haga störfum sínum í samræmi við settar siðareglur.“ Í siðareglum stærstu sveitarfélaga landsins mega bæjarfulltrúar ekki þiggja greiða eða gjafir, en aðeins ef almennt má líta á það sem endurgreiðslu fyrir greiða eða sérstaka þjónustu. Slíkt er túlkunaratriði í hvert sinn og því er gefið leyfi fyrir gjafir ef engin hagsmunatengsl eru til staðar.„Óverulegar“ gjafir ekki leyfðarÍ sumum reglnanna má ekki þiggja gjafir sem teljast „óverulegar“ eins og það er nefnt. Sum staðar er þó sett þak á verðmæti gjafa, eins og hjá Reykjavíkurborg sem skyldar borgarfulltrúa að gefa upp gjafir yfir fimmtíu þúsund króna virði. Hafnarfjörður leggur blátt bann við að þiggja gjafir og skýrir reglurnar ekki frekar.Götóttar reglurTónleikamiðar til allra bæjarfulltrúa Kópavogs, maka þeirra og átta starfsmanna á tónleika Justin Timberlake í Kórnum í Kópavogi í síðasta mánuði vekur spurningar um hvort siðareglur séu götóttar gagnvart misnotkun. Um leið er spurt hvort að hægt sé að hafa skotheldar siðareglur, þær geti aldrei leyst siðferðileg vandamál einar og sér. Bæjarsjóður fékk í nettó tekjur af tónleikunum 5,5 milljón frá Senu á meðan veltan af tónleikunum voru 400 milljónir. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 var greiðsla Senu fyrir Kórinn mjög lág miðað við hvað forsvarsmenn Egilshallar kröfðust. Treysta bæjarfulltrúumAllir bæjarfulltrúar Kópavogs þáðu boð á tónleikana. Pétur Hrafn Sigurðsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi sagðí í samtali við Stöð 2 hafa litið svo á að tónleikarnir væru bara enn einn viðburðurinn sem hann fengi ósk um að mæta á. "Og að sjálfsögðu gerði ég það. Nokkrum vikum áður fór á myndlistarsýningu og var ekkert gagnrýndur sérstaklega fyrir það." Um samninginn við Senu segir Pétur: "Samningarnir voru löngu gerðir áður en boðsmiðarnir voru veittir, í tíð fyrri bæjarstjórnar. Ég er nýr í bæjarstjórn og hafði enga aðkomu að því í sjálfu sér. Það verður bara að treysta bæjarfulltrúm hverju sinni um hvað þykir eðlilegt og hvað þykir ekki eðlilegt, í þessum sem og svo mörgu öðru".Þarf ekki endurskoðunÁrmann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar hefur ekki viljað svara því hvort að siðareglur hafi verið brotnar og Pétur segist ekki telja að það þurfi að endurskoða þær. Ekkert eftirlit er almennt haft með framgangi gagnvart siðareglum og síðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur ekki haft slíkt hlutverk síðan hún hóf störf árið 2012. Í lögum segir þó að nýkjörnar bæjarstjórnir eigi að skoða siðareglurnar og skila af sér staðfestingu um það til ráðuneytis sveitarstjórnarmála. Uppfært kl 22:18. Athugasemd við fréttina hefur borist frá Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs: „Það er ósvífið að segja í frétt Vísis að ég hafi ekki viljað svara því hvort að siðareglur hafi verið brotnar þegar bæjarfulltrúar og nokkrir starfsmenn Kópavogsbæjar fengu miða á tónleika með Justin Timberlake í Kórnum. Ég svara þessari spurningu í svari við fyrirspurn um efnið, svari sem lá fyrir á mánudag og var þann sama dag sent blaðamanni Fréttablaðsins. Svarið hefur einnig verið sent fréttastjóra Vísis og fréttamanni Stöðvar 2. Blaða- og fréttamönnum 365 átti því að vera fullkunnugt um afstöðu mína, sem er sú að siðareglur hafi ekki verið brotnar.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira