Mögulega forsendur til meiri vaxtalækkana Heimir Már Pétursson skrifar 5. nóvember 2014 12:55 Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði nafnvexti sína, eða stýrivexti , í morgun um 0,25 prósentustig en vextirnir höðfu þar til í dag verið óbreyttir í sex prósentustigum í tvö ár. Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir heppilegt að lækka vextina nú vegna þess hvað verðbólga og verðbólguvæntingar séu litlar. Samkvæmt spá Seðlabankans, sem birtist í Peningamálum í dag, eru horfur á heldur minni hagvexti í ár en spáð var í ágúst. Áfram sé gert ráð fyrir kröftugum vexti innlendrar eftirspurnar og þróttmiklum hagvexti á næstu þremur árum. Batinn á vinnumarkaði haldi einnig áfram, þótt nokkuð hafi dregið úr vexti vinnuaflseftirspurnar. Verðbólga hafi verið undir markmiði bankans í níu mánuði samfleytt. „Þetta er heppilegur tímapunktur vegna þess að verðbólga hefur núna verið undir markmiði bankans í níu mánuði og útlit fyrir að hún geti lækkað eitthvað frekar á allra næstu mánuðum og vegna þess að verðbólguvæntingar núna, bæði til skamms og langs tíma, eru að hníga í átt að verðbólgumarkmiðunum. Eitthvað sem við höfum bara ekki séð áður og eru mjög ánægjuleg tíðindi,“ segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Raunvextir hafi hækkað að undanförnu vegna hjöðnunar verðbólgu og með ákvörðun sinni sé Seðlabankinn að hægja á því ferli. Þá segir í rökstuðningi peningastefnunefndar Seðlabankans að lítil alþjóðleg verðbólga og stöðugt gengi krónu stuðli að lítilli verðbólgu þrátt fyrir töluverðar launahækkanir. Verðbólguhorfur til skemmri tíma séu af þessum sökum betri en í ágúst. Már segir hugsanlegt að skilyrði skapist til að lækka stýrivextina enn frekar. „Það fer náttúrlega bara eftir því hver framþróunin verður. Hvað gerist á allra næstu mánuðum og ekki síst hvað kann að gerast í almennum kjarasamningum. Einnig varðandi þá þætti sem hafa áhrif á heildareftirspurn eins og ríkisfjármál og annað þvíumlíkt. En það getur vel verið að það aðstæður til að stíga frekari skref. Annað hvort fljótlega eða eftir að við erum komin fram yfir kjarasamninga,“ segir Már. Samkvæmt spá Seðlabankans eru líkur á að verðbólga hjaðni frekar á næstu mánuðum og verði við eða undir markmiði fram yfir mitt næsta ár.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira