Sjálfsvíg eru samfélagsmein Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. september 2014 08:00 Um 15 af hverjum hundrað þúsund Íslendingum fremja sjálfsvíg. Nítíu prósent af þeim eiga geðrænan og/eða vímuefnavanda að stríða. Tíu prósent sjálfsvíga eru framin af tímabundinni örvæntingu og meiri hvatvísi. vísir/valli
Samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er sjálfsvígstíðni á Íslandi með þeirri hæstu í Evrópu. Í kjölfar útgáfu skýrslunnar hefur verið rætt við þá sem hafa reynt sjálfsvíg, ástvini þeirra sem hafa farið með þeim hætti og fagfólk í geðheilbrigðisstéttinni í fjölmiðlum undanfarna viku. Skilaboðin eru skýr. Forvarnir, fræðslu og úrræði þarf að efla. Með forvörnum og fræðslu verður umræðan um geðsjúkdóma og sjálfsvíg opnari sem vinnur á fordómum. Fordómar búa til skömm. Skömm býr til þöggun. Þöggun hjálpar engum.Skeytingarleysi gagnvart öðrum Fjögurra barna faðir, sem hefur verið heimilislaus undanfarna mánuði vegna veikinda sinna, hafði samband við blaðamann í kjölfar umfjöllunar um sjálfsvíg. Hann hefur aldrei átt við vímuefnavanda að stríða en hefur misst allt sitt vegna þunglyndis. Hann svaf í bílnum sínum á bílastæðinu við geðdeild Landspítalans í allt sumar og íhugaði hvernig best væri að binda enda á líf sitt. Einhvers staðar í hjarta sínu vonaði hann að eftir honum yrði tekið og honum boðin hjálp. En hann segir sinnuleysi Íslendinga vera ótrúlegt. „Oft á tíðum þegar ég var fyrir utan bílinn og starfsfólk spítalans átti vaktaskipti, fór ég að fylgjast með fólkinu sem átti leið hjá. Ef það hefði litið upp og litið á mig hefði verið auðvelt að sjá að þarna var utangarðsmaður búinn að koma sér fyrir á náttstað. En mjög fáir litu upp. Þeir sem gerðu það litu eldsnöggt í augu mín, en bara augnablik og síðan fóru þeir strax í sömu göngustöðu og við Íslendingar þekkjum svo vel,“ skrifar maðurinn í bréfi sínu.Faðir drengs sem svipti sig lífi vegna pókerskuldar tekur í sama streng. Hann segir að gefa þurfi náunganum gaum í stað þess að líta í hina áttina þegar einhverjum í kringum okkur líður illa, hvort sem það er samnemandi, vinnufélagi eða fjölskyldumeðlimur.„Við verðum að passa betur upp á hvert annað,“ segir hann.Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherraKristján Þór Júlíusson.„Hverjar eru forvarnirnar þegar komið er á leiðarenda sjálfsmorðingja?“ Margir sem rætt var við í vikunni nefndu að eina aðstoðin sem þeim hefði verið boðin í kjölfar sjálfsvígstilraunar væri lyfjaskammtur. Heimilislausi maðurinn segir að pantaður hafi verið tími fyrir hann á göngudeild til að fylgjast með lyfjunum, það var eina eftirfylgnin. Hann spyr að lokum í bréfi sínu: „Hverjar eru forvarnirnar þegar komið er á leiðarenda sjálfsmorðingja?“Yfirlæknir á geðsviði segir mikilvægt að takast á við þunglyndi á fyrstu stigum með sálfræðimeðferð. Hann bætir þó við að auðveldara sé að nálgast lyf en sálfræðimeðferðir, enda sé viðtalsmeðferð dýr og því aðgengi fólks að henni ójafnt eftir fjárhagsstöðu. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir að forvarnir vegna sjálfsvíga verði liður í nýrri geðheilbrigðisstefnu. „Skoðað verður hvernig heilsugæslustöðvar geti boðið upp á sálfræðiþjónustu í auknari mæli en nú er gert,“ segir Kristján og vísar til fyrirkomulagsins í Bretlandi þar sem hugræn atferlismeðferð er orðin hluti af opinberum leiðbeiningum heilbrigðisyfirvalda. Hann segir upphafskostnað geta verið mikinn en reynslan sýni að þetta sé til bóta þegar til lengri tíma er litið með minnkandi lyfjakostnaði og að fólk skili sér fyrr aftur út á vinnumarkaðinn.Hugrekki að segja frá Eftirlifendur og þeir sem hafa reynt sjálfsmorð kalla eftir aukinni fræðslu og forvörnum. Þessir aðilar hafa tekið stærstu skrefin í þá átt, með því að ræða reynslu sína opinberlega. Sú umræða sem skapast við það er mikilvægasta vopnið gegn fordómum. Stjórnvöld hljóta að eiga næstu skref, með því að styrkja þessa baráttu með auknum fjármunum í skipulega geðræktarfræðslu og stuðning við þá sem eiga um sárt að binda. Við hin getum lagt okkar af mörkum og hætt að líta undan þegar einhverjum líður illa í kringum okkur.
Tengdar fréttir Ráðherra dáist að hugrekki eftirlifenda Sjálfsvígsforvarnir verða liður í nýrri heilbrigðisstefnu. 11. september 2014 07:00 Faðir ungs manns sem framdi sjálfsvíg: „Við verðum að rjúfa þagnarmúrinn“ Benedikt Þór Guðmundsson segir samfélagið þurfa að læra að gefa vanlíðan annarra gaum, taka ábyrgð og bregðast við. 9. september 2014 07:00 Tíðni sjálfsvíga á Íslandi með því hæsta í Evrópu Skýrsla Alþjóðaheilbrigðisstofnunar um sjálfsvíg er komin út. 6. september 2014 07:00 Úrræðaleysi vegna sjálfsvíga: „Upplifði mig alveg eina“ Ekkert teymi, ákveðið ferli eða sértæk úrræði bíða þeirra sem útskrifast af spítala eftir að hafa reynt sjálfsvíg. 10. september 2014 07:00 Fleiri á sjúkrahús vegna sjálfsskaða Á þriðja hundrað manns var greint með sjálfsskaða í fyrra. 9. september 2014 07:00 Tvöfalt fleiri hringdu í sjálfsvígshugleiðingum Óvanalega margir hringdu í Hjálparsímann 1717 í sumar vegna sjálfsvígshugsana. Verkefnastjóri segir vitundarvakningu hafa orðið við dauðsfall Robins Williams. 8. september 2014 07:00 Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Fleiri fréttir Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Sjá meira
Ráðherra dáist að hugrekki eftirlifenda Sjálfsvígsforvarnir verða liður í nýrri heilbrigðisstefnu. 11. september 2014 07:00
Faðir ungs manns sem framdi sjálfsvíg: „Við verðum að rjúfa þagnarmúrinn“ Benedikt Þór Guðmundsson segir samfélagið þurfa að læra að gefa vanlíðan annarra gaum, taka ábyrgð og bregðast við. 9. september 2014 07:00
Tíðni sjálfsvíga á Íslandi með því hæsta í Evrópu Skýrsla Alþjóðaheilbrigðisstofnunar um sjálfsvíg er komin út. 6. september 2014 07:00
Úrræðaleysi vegna sjálfsvíga: „Upplifði mig alveg eina“ Ekkert teymi, ákveðið ferli eða sértæk úrræði bíða þeirra sem útskrifast af spítala eftir að hafa reynt sjálfsvíg. 10. september 2014 07:00
Fleiri á sjúkrahús vegna sjálfsskaða Á þriðja hundrað manns var greint með sjálfsskaða í fyrra. 9. september 2014 07:00
Tvöfalt fleiri hringdu í sjálfsvígshugleiðingum Óvanalega margir hringdu í Hjálparsímann 1717 í sumar vegna sjálfsvígshugsana. Verkefnastjóri segir vitundarvakningu hafa orðið við dauðsfall Robins Williams. 8. september 2014 07:00