Fær 5,3 milljónir eftir fall af pílatesbolta Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2014 08:15 Vísir/Getty
Vátryggingafélagi Íslands hefur verið gert að greiða konu 5,3 milljónir króna eftir að hún slasaðist í líkamsræktarstöðinni World Class í desember 2011. Þá var konan að gera kvið- og bakæfingar á námskeiði og féll af pílatesbolta á vinstri öxlina. Hlaut hún alvarlega áverka og á sjúkrahúsi kom í ljós að hún hlaut alvarlegt brot á efri enda upphandleggs. Varanleg örorka konunnar var metin sjö prósent. Fram kemur í dómnum að æfingin hafi verið tekin undir lok tímans og að um helmingur hópsins á námskeiðinu hafi tekið þátt. Gekk hún út á að iðkandinn átti að hvíla hendur og hné á pilatesbolta, sem er um 65 sentimetrar að hæð. Þá átti að losa fætur frá gólfi og reisa sig hægt og rólega upp. Niðurstaða dómsins er að World Class bæri ábyrgð á slysinu og að auðvelt hefði verið að draga úr hættu æfingarinnar með því að tveir og tveir gerðu hana saman, eða með því að gera hana upp við vegg. Konan hafi ekki verið vöruð við því að æfingin gæti verið varasöm og að hún hafi virst einföld þegar leiðbeinandi sýndi hana. Vátryggingarfélagið var dæmt til að greiða konunni 5,3 milljónir króna og eina milljón króna í málskostnað. Dóminn í heild sinni má lesa hér á heimasíðu Héraðsdóms Reykjavíkur.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira