„Það er kraumandi óánægja undir niðri“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 25. september 2014 13:42 vísir/vilhelm
Formaður starfsmannafélags Kópavogs segir allt benda til þess að Kópavogsbær allur muni fara í lamasess vegna yfirvofandi verkfalls félagsmanna. Mikil óánægja ríki á meðal félagsmanna og segir enga sýnilega lausn í nánd. „Það er kraumandi óánægja undir niðri,“ segir Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, formaður starfsmannafélags Kópavogs (SFK). Yfirvofandi er verkfall félagsmanna SFK, náist samningar ekki fyrir 14. október næstkomandi. Bærinn mun sitja eftir í lamasessi en félagsmenn SFK eru rúmlega þúsund. Gengið var til kosninga um verkfallsaðgerðir á dögunum og samþykkti 89,89 prósent félagsmanna að leggja niður störf dagana 14., 15., 21. og 22. október næstkomandi. Boðað verður til allsherjarverkfalls 1. nóvember, nái deiluaðilar ekki sáttum. Af 710 manna úrtaki kusu 446 félagsmenn. „Við myndum lama starfsemi leik- og grunnskóla. Sundlaugarnar myndu að öllum líkindum loka og íþróttamannvirki loka. Hér lamast allt á skrifstofunni. Innheimta, bókhald, þjónustuver, velferðarsvið, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Jófríður. Kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara í júlí síðastliðnum. Öll önnur bæjarstarfsmannafélög innan BSRB höfðu á undirritað og samþykkt framlengingu á kjarasamningum sínum en á það féllust félagsmenn SFK ekki. „Kröfur félagsmanna SFK eru í raun bara þær að þeir vilja hærri laun. Þeir höfnuðu því sem aðrir höfnuðu, sem aðrir höfðu samþykkt og vilja meiri hækkun en það sem önnur bæjarstarfsmannafélög hafa boðið upp á.“ Frá því í ágúst hefur verið fundað jafnt og þétt í húsakynnum ríkissáttasemjara en var viðræðum formlega slitið 8. september síðastliðinn. Aftur verður sest við samningaborðið hinn 1. október næstkomandi í þeirri von um að sættir náist. Jófríður segir þó að eins og staðan er núna, sé engin lausn í sjónmáli. „Eins og er, þá nei. Við sjáum enga lausn,“ segir Jófríður.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira