Hagræðingarhópurinn enn að störfum Aðalsteinn Kjartansson skrifar 25. september 2014 14:31 Unnur Brá Konráðsdóttir og Ásmundur Einar Daðason eru bæði í hagræðingarhópnum. Vísir / GVA
Hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar, sem skipaður er fjórum stjórnarþingmönnum, er enn við störf. Hópurinn fundaði nýverið með fulltrúum allra ráðuneyta til að fylgja eftir tillögunum sem hópurinn lagði fram á síðasta ári. Ekki er von á fleiri tillögum frá hópnum.Hittast enn á fundum „Í rauninni er það á ábyrgð ríkisstjórnarinnar að framfylgja tillögunum beint en okkar verkefni er að hafa eftirlit með því og höfum gert það. Við erum nýlega búin að funda um það,“ segir Ásmundur Einar Daðason, þingmaður og formaður hagræðingarhópsins. Ásmundur segir ekki von á fleiri tillögum frá hópnum. „Ekki að svo stöddu en það veit enginn hvað gerist í framtíðinni,“ segir hann. „Enda sýnist mér nú að það sé nóg undir þarna, í það minnsta af kerfisbreytingum, er ekki ágætt að reyna að sigla einhverju af þessu í höfn áður en við ræsum út fleiri báta.“Ábyrgðin hjá hverju ráðuneyti „Í rauninni setti ráðherranefnd ríkisstjórnarinnar það á ábyrgð viðkomandi fagráðuneyta að fylgja síðan tillögunum eftir,“ útskýrir Ásmundur. „Þannig að þar liggur í rauninni framkvæmdin en við höfum eftirlit og eftirfylgni eftir þeim.“ Aðspurður segir hann tillögur hópsins fara misvel í ráðherra, allt eftir um hvaða tillögu ræðir. „Auðvitað er það misjafnt eftir verkefnum,“ segir hann en bætir við að hann hafi ekki fundið fyrir öðru en að vilji sé til þess að hagræða. „Enda þarf það að gerast ef að við ætlum að ná niður rekstrarkostnaði ríkisins frekar.“ Aðrir meðlimir hópsins eru Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, Guðlaugur Þór Þórðarson og Unnur Brá Konráðsdóttir. Þá starfa Arnar Þór Másson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, og Sigurður Helgason, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, með hópnum.
Alþingi Mest lesið Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Innlent Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Innlent Fleiri fréttir Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Dúx í MH og talar fjögur tungumál Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Vinnumarkaður, verðbólga og ESB í Sprengisandi í dag Skjálfti upp á 2,8 við Hellisheiði Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Ók rafmagnshjólinu á bíl í 101 Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Sjá meira