Engar miskabætur vegna handtöku í Búsáhaldabyltingunni 25. september 2014 20:10 Vísir/ANTON
Kona sem var handtekin í mótmælum við Alþingishúsið í janúar 2009 mun ekki fá greiddar miskabætur vegna handtökunnar. Hún hafði krafist þriggja milljóna króna frá íslenska ríkinu. Konan var ein þeirra sem lögregla handtók og batt með plastreipi í mótmælum við þinghúsið við upphaf Búsáhaldabyltingarinnar. Vegna aðstæðna á vettvangi hafi ekki reynst gerlegt að flytja hina handteknu á lögreglustöð til yfirheyrslu þegar í stað og því þurftu þeir að bíða í vörslu lögreglu á staðnum. Farið var með hina handteknu í bílastæðiskjallara undir þinghúsinu.Í dómnum segir að konan hafi upplifað handtökuna þannig að henni hafi verið hrint fast að glervegg nýbyggingar Alþingishússins af lögreglu á meðan hún hafi verið handjárnuð. Að því búnu hafi hún ásamt öðrum handteknum mótmælendum verið flutt niður í bílakjallara undir Alþingishúsinu þar sem henni var komið fyrir í röð ásamt öðrum sem einnig voru handjárnaðir. Var þeim handteknu þá gert að sitja þar á gólfi gegnt hvert öðru í gleiðri stöðu þannig að fætur krossuðu fætur annarrar handtekinnar manneskju. Þá segir að meðan konan sat handjárnuð í þessari stöðu hafi tilteknir lögreglumenn á staðnum viljað ræða við hana önnur óskyld mál að öðrum áheyrandi og henni hafi þótt það bæði auðmýkjandi og óviðeigandi. Hún var síðan flutt í fangaklefa. Taldi konan frelsissviptinguna vera óréttmæta þar sem hún hafi verið að tjá pólitískar skoðanir sínar með friðsamlegum hætti. Ekkert hefði heldur komið fram í málflutningi lögreglu sem réttmætti handtökuna. Lögreglan mótmælti þessum málflutningi konunnar sem sagði konuna hafa hafa hindrað störf lögreglu við að verja Alþingishúsið. Þá hafi hún gengið hvað harðast fram við að stofna þar til uppþota og gera aðsúg að lögreglu. Konan var ákærð fyrir að reyna að koma í veg fyrir að handtaka mann í janúar 2011 en var sýknuð af þeirri kröfu. Konan krafðist einnig bóta vegna þeirrar handtöku en dómari hafnaði þeirri kröfu.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira