Frétti af flutningi svæðisskrifstofu í heita pottinum Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 3. október 2014 11:13 Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar.
Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar fordæmir þau vinnubrögð ríkisins að ætla að loka Svæðisskrifstofu Vinnueftirlitsins í Hveragerði og færa starfsemina og þar með fimm störf á Selfoss. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar frétti það í heita pottinum í sundlauginni í Hveragerði að það ætti að flytja starfsemi Svæðisskrifstofu Vinnueftirlits ríkisins í Hveragerði á Selfoss og hefur hún nú fengið það staðfest hjá starfsmönnum eftirlitsins. Bæjarráð Hveragerðisbæjar fordæmi vinnubrögðin í gær og það sama gerir Aldís bæjarstjóri. „Auðvitað þykir þetta afar sérkennilegt að taka fimm störf úr Hveragerði til þess að flytja þau örfáa kílómetra lengra austur. Þetta er vægast sagt undarleg ráðstöfun, sem við fordæmum. Þetta eru einu störfin á vegum ríkisins í Hvergerði ef undan er skilin heilsugæslan. Þess vegna finnst okkur mjög sérstakt að taka þessa stofnum, sem er í sérhönnuðu húsnæði og var sérstaklega innréttað fyrir þau á sínum tíma,“ segir Aldís. Vinnueftirlitið mun færast í sama húsnæði og Vinnumálastofnun hefur við Eyraveginn á Selfossi en þar er ríkið með leigusamning til 2017 en leigusamningurinn í Sunnumörk í Hveragerði er hins vegar að renna út. „Hvergerðingar eru mjög ósáttir og okkur finnst þetta ömurleg skilaboð til landsbyggðarinnar þegar það eru búin að vera svona störf í sveitarfélagi eins og okkar. Þau séu svo rifin frá okkur kannski af því að við erum ekki nógu mikil landsbyggð, við áttum okkur ekki á þessu“, segir Aldís ennfremur. Bæjarráð Hveragerðisbæjar sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem það hvetur félagsmálaráðherra til að endurskoða ákvörðun sína: „Hvergerðingar undrast þær fréttir sem borist hafa um væntan flutning Svæðisskrifstofu Vinnueftirlits frá Hveragerði til Selfoss. Vinnueftirlitið hefur haft skrifstofu sína í Hveragerði í áratugi og er í dag í afar góðu sérhönnuðu húsnæði sem hentar Vinnueftirlitinu vel. Er þetta eina starfsemin sem rekin er á vegum ríkisins í Hveragerði ef undan er skilin heilsugæslan. Þykir okkur því lítill sómi að því að færa þessi 5 stöðugildi á Selfoss og valda þar með enn meiri skekkju en orðin er í dreifingu starfa á vegum ríkisins. Ekkert getur í fljótu bragði skýrt þessa ákvörðun sem bæjarfulltrúar í Hveragerði fordæma harðlega um leið og þeir hvetja félagsmálaráðherra til að endurskoða ákvörðun sína.“
Mest lesið Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent Brotist inn og gert sig heimakominn Innlent Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Innlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Innlent Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Innlent Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innlent Fleiri fréttir Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Sjá meira