Ætlar að taka harðar á heimilisofbeldi Snærós Sindradóttir skrifar 20. ágúst 2014 09:15 Fleiri handteknir Í tíð Sigríðar hjá lögreglunni á Suðurnesjum voru fleiri heimilisofbeldismenn handteknir og fjarlægðir af heimilum sínum en hafði áður tíðkast. Fréttablaðið/ Arnþór
Nýr lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, vill ráðast í sömu stefnumótunarvinnu í heimilisofbeldismálum og hún gerði í tíð sinni sem lögreglustjóri á Suðurnesjum. Breytingarnar sem ráðist var í gerðu það meðal annars að verkum að fleiri einstaklingar í umdæminu fengu á sig nálgunarbann og mun fleiri ofbeldismenn voru fjarlægðir af heimilum sínum. „Í fyrsta lagi ákváðum við að þetta væri forgangsmál. Við höfðum sameiginlegan skilning á því að fara af fullum þunga inn í hvert einasta mál,“ segir Sigríður Björk. Rannsóknardeild, almenn deild og lögfræðisvið lögreglunnar á Suðurnesjum unnu í sameiningu að hinu nýja kerfi. Þá var náið unnið með félagsþjónustunni á svæðinu.Sigríður Björk Guðjónsdóttir nýr lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. „Það er gert áhættumat í hverju tilviki, eftir atvikum er farið í brottvísun á heimili, oftast að beiðni þolanda en það getur líka verið að frumkvæði lögreglustjóra,“ segir Sigríður. Hún segir að í undantekningartilfellum hafi þurft að grípa til neyðarhnapps. Reynsla erlendis gefi til kynna að neyðarhnappurinn hafi fælandi áhrif á ofbeldismenn. Sigríður segir að reynsla lögreglunnar á Suðurnesjum sýni að eftir því sem lengra líður frá verknaðinum verði erfiðara að ná haldbærum sönnunargögnum í málum. Oft dragi þolendur vitnisburð sinn til baka af ótta við ofbeldismanninn. Hin nýja nálgun í heimilisofbeldismálum þýðir aukin fjárútlát í málaflokkinn. „Þetta er ekkert ódýrt en við erum að reyna að hindra endurtekningu og rjúfa vítahring. Við teljum að þetta sé sú forgangsröðun sem við eigum að hafa,“ segir Sigríður. Björk Vilhelmsdóttir formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar.Hún segir að það sé einnig undir borgaryfirvöldum komið hvort átakið gangi eftir eins og hún vonast til. Félagsþjónustan verði að koma þétt að málum, meðal annars með eftirfylgni hjá þolendum og beinni aðkomu að þeim málum sem embættið hefur til meðferðar. „Það þarf að laga þetta að kerfinu á hverjum stað. Þetta er klárlega aukin vinna og það þarf að koma til vilji frá sveitarfélögunum. Það þarf stefnumótandi ákvarðanir.“ Björk Vilhelmsdóttir, formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að ráðið hafi kynnt sér hvernig málum var háttað hjá lögreglunni á Suðurnesjum. „Það er fullur pólitískur vilji hjá okkur,“ segir Björk.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Sjá meira