Mikil fjölgun smábáta á makrílveiðum Jón Júlíus Karlsson skrifar 20. ágúst 2014 20:00 „
Það stefnir í metár,“ segir skipstjóri sem hefur verið á makrílveiðum skammt frá Grindavík síðustu daga. Talsvert fleiri smábátar stunda nú makrílveiðar en á sama tíma á síðasta ári. Sigurbjörn Berg skipstjóri á Andey GK og Þorleifur Guðjónsson háseti hafa síðustu vikur verið á makrílveiðum og gert út frá Grindavíkurhöfn. Fréttamaður og myndatökumaður Stöðvar 2 fengu að slást í för með þeim félögum í morgun en mikið hefur veiðst af makríl við innsiglingunni, skammt frá höfninni. „Ætlum við séum ekki komnir með 50-60 tonn síðastliðin mánuð. Það er mjög gott og sumir hafa náð enn meiru,“ segir Sigurbjörn Berg. Andey GK, sem eitt sinn var norskur rannsóknarbátur, hefur verið sérútbúinn af íslenskri hönnun fyrir makrílveiðar líkt og fjöldi annarra smábáta. Það kostar þó skildinginn. „Það kostar svona 10 milljónir að útbúa svona dæmi,“ segir Sigurbjörn og margir hafa farið þá leið. „Það er enginn árangur af þessu öðruvísi. Hitt er bara vitleysa.“ Þrátt fyrir mokveiði hjá skipverjum Andey á síðustu vikum þá gengu veiðar nokkuð erfiðlega í morgun. Skipstjóri taldi nærveru fréttamanns líklegstu ástæðuna fyrir aflabresti dagsins. Um 110 smábátar hafa verið á makrílveiðum í ár og hefur þeim fjölgað um helming ef miðað er við síðustu vertíð. Nú þegar eru 4.000 tonn komin að landi en smábátar mega veiða 6.800 tonn í ár. Smábátasjómenn vonast til að kvótinn verði aukinn svo hægt verði að veiða fram í nóvember. Nánar í myndbandinu hér að ofan.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira