Menningar- og listafjelag tekur við rekstri Bæjarbíós Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 7. maí 2014 15:03 "Við erum búin að vera að sverma í kringum þetta í svolítinn tíma,“ segir Kristinn.
Menningar- og listafjelag Hafnarfjarðar (MLH) mun sjá um rekstur Bæjarbíós í Hafnarfirði næsta árið. Þetta var ákveðið á fundi Menningar- og ferðamálanefndar bæjarins í gær. Ákvörðunin byggir meðal annars á þátttöku Menningar- og listafjelags Hafnarfjarðar í samfélaginu á síðustu misserum. Félagið hafi staðið fyrir vel heppnuðum viðburðum meðal annars í samstarfi við Miðbæjarsamtökin og Gaflaraleikhúsið. „Við erum í skýjunum með þetta,“ segir Kristinn Sæmundsson, dagskrárstjóri MLH. „Við erum búin að vera að sverma í kringum þetta í svolítinn tíma. Þannig að við hlökkum bara til að fá að starfa í þessu húsi með öllum þeim tækifærum sem þar leynast.“ MLH var stofnað í febrúar og stóð meðal annars fyrir Færeyskum dögum í Hafnarfirði í upphafi árs. Menningar- og ferðamálanefnd mun áfram vinna að gerð samnings við mennta- og menningarmálaráðuneytið sem tryggja mun sýningaþátt Kvikmyndasafns Íslands í bíóinu. Sá þáttur muni væntanlega skýrast. Mennta- og menningarmálaráðuneytið gagnrýndi bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir að setja starfsemi Kvikmyndasafns Íslands í Bæjarbíói í uppnám. Með því að bæta við þá starfsemi sem fram fer í bíóhúsinu hafi upphaflegar forsendur fyrir flutningi Kvikmyndasafnsins í Hafnarfjörð orðið að engu. „Það er ekki þannig að Kvikmyndasafnið sé að fara út,“ segir Marín Hrafnsdóttir, menningar- og ferðmálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. „Í öllu ferlinu hefur verið lögð á það áhersla að Kvikmyndasafn Íslands verði áfram með sínar sýningar í Bæjarbíói tvisvar í viku.“
Mest lesið Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Innlent Tugir með magapínu eftir þríþraut við Laugarvatn Innlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Grunaðir um að stinga mann í rassinn að tilefnislausu Innlent Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Erlent Sjö ára dómur fyrir að stinga tvo: Hittu árásarmanninn í fyrsta skipti þessa nýársnótt Innlent Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Erlent Ákvörðun saksóknara sendi undarleg skilaboð Innlent Bandarískur kjarnorkukafbátur í heimsókn Innlent Fleiri fréttir Þrír milljarðar til viðbótar í viðhald vega Sjö ára dómur fyrir að stinga tvo: Hittu árásarmanninn í fyrsta skipti þessa nýársnótt Vill vindorkuver í Garpsdal og breytir tillögu stjórnar Tugir með magapínu eftir þríþraut við Laugarvatn „Við erum með háskólakerfi sem er fjármagnað undir OECD meðaltali“ Rembihnútur á þinginu en örþrifaráð ekki til umræðu Ákvörðun saksóknara sendi undarleg skilaboð Þinglok ekki í augnsýn og háskólarnir undirfjármagnaðir Grunaðir um að stinga mann í rassinn að tilefnislausu Ný kort sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi Bandarískur kjarnorkukafbátur í heimsókn Formenn þingflokka halda spilunum þétt að sér Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Hiti nær 22 stigum fyrir austan Fjarlægðu „óvelkominn aðila“ af öldrunarheimili Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Bíll í ljósum logum á Skaganum Vatnslögn í sundur í Smáralind Aldrei fleiri börn á biðlista og útrás í Kína Á hundrað og þrjátíu á sextíu götu Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Hinn stungni á batavegi en stungumennirnir ófundnir Nítján ára ferðamaður fannst látinn Sjá meira