Sex hundruð missa atvinnuleysisbætur um áramótin Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 11. september 2014 10:30 Ríkið ætlar að spara á annan milljarð með því að stytta þann tíma sem fólk getur fengið atvinnuleysisbætur. Þeir sem detta út af bótum og fá ekki vinnu fá framfærslustyrk frá sveitarfélögunum. Fréttablaðið/hörður
Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að spara 1,1 milljarð króna á næsta ári með því að stytta bótatímabil atvinnulausra úr þremur árum í tvö og hálft ár um næstu áramót. Samkvæmt samantekt Vinnumálastofnunar þýðir það að 623 missa rétt sinn til bóta og detta út af skránni á einu bretti um áramótin en að jafnaði hafa á milli 80 og 90 atvinnulausir fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði á þessu ári. Vinnumálastofnun áætlar að 900 til 1.000 einstaklingar hafi eða muni fullnýta rétt sinn til atvinnuleysisbóta á þessu ári. Fjölmennasti aldurshópurinn sem tapar bótarétti er fólk á milli 30 og 40 ára, eða 190 manns, þar af eru konur mun fjölmennari, eða 124. Þegar menntun hópsins í heild er skoðuð kemur í ljós að 285 hafa lokið grunnskólaprófi, næstfjölmennasti hópurinn sem tapar bótarétti um áramót eru háskólamenntaðir, eða 135 manns.Þeir sem missa rétt til atvinnuleysisbóta eiga rétt á framfærslustyrk frá sínu sveitarfélagi, hann ræðst þó af félagslegri stöðu viðkomandi og hvort hann á maka sem getur eða vill hafa viðkomandi á framfæri. Sveitarfélögin eru ekki sátt við að fá allan þennan fjölda yfir til sín um áramótin. „Þetta er ansi bratt,“ segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og bendir á að það sé ansi stutt síðan bótarétturinn var styttur úr fjórum árum í þrjú. Hann segir að verið sé að færa kostnað frá ríkinu til sveitarfélaganna. „Við viljum að það verði farið í atvinnuátak til að mæta þessu. Þetta er þvinguð verkefnafærsla á milli ríkis og sveitarfélaga,“ segir Halldór.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira