Börnin í aðalhlutverki á námskeiði Ljóssins Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 11. september 2014 12:00 Á námskeiði Ljóssins. "Dorrit Moussaieff forsetafrú hefur yfirleitt verið í för með Sollu í Gló þegar hún heimsækir börnin og kennir þeim að búa til eitthvað hollt og gott. Það hefur krökkunum fundist magnað,“ segir Erna Magnúsdóttir. „
Börn hafa þörf fyrir að tala og hitta aðra sem skilja hvað þau eru að ganga í gegnum. Hér finnst engum tiltökumál þótt barn teikni mynd af mömmu sinni sköllóttri,“ segir Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvarinnar Ljóssins. Þar hefst í dag í samstarfi við Foreldrahúsið námskeið fyrir sex til tólf ára börn sem eiga það sameiginlegt að vera aðstandendur krabbameinsveikra. Börnin fá tækifæri til að upplifa, tjá sig í gegnum leik og verkefni í styðjandi umhverfi. Slík námskeið hafa verið haldin frá árinu 2006 og hafa reynst börnunum afskaplega vel, að því er Erna greinir frá. „Mörg þeirra eru kvíðin og líður illa í skólanum þegar þau koma hingað en þau koma sterkari út að loknu námskeiði hér. Það er reynt að styrkja þau og sjálfsmynd þeirra. Það er hugsað um þau og þeirra tilfinningar. Það er ekki alltaf verið að tala um krabbamein en það er komið inn á það á góðan hátt með reyndum starfsmönnum.“ Erna tekur það fram að það sé erfið lífsreynsla fyrir öll börn og ungmenni þegar aðstandandi veikist af krabbameini. „Þegar einn veikist verður öll fjölskyldan veik. Hlutverkin á heimilinu breytast og tíminn með foreldrunum verður öðruvísi. Sum börn koma hingað oftar en einu sinni á námskeið og þau koma jafnvel aftur þótt þau hafi misst foreldri. Þeim finnst gott að eiga athvarf hér.“ Að sögn Ernu hafa foreldrar greint frá því að börnin segi ekki frá því sem gerist á námskeiðinu. „Þau halda þessu fyrir sig. Þetta er þeirra upplifun. Hér eru þau í aðalhlutverki og þau eru ekki að blaðra um það heima.“ Þann 2. október hefst námskeið hjá Ljósinu fyrir unglinga í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla og ungmenni á framhaldsskólaaldri. „Þessi hópur hefur verið út undan og nú hefur verið sérhannað námskeið fyrir unglinga. Það hafa ekki verið nein úrræði í þjóðfélaginu fyrir þennan aldur. Við höfum verið með slík námskeið áður en þau hafa ekki gengið nógu vel. Í þetta skipti höfum við ráðið karlmenn til þess að vera með konum við stjórn námskeiðanna þar sem við þurfum að ná til unglingsstráka líka. Það verður verkefnavinna á þessum námskeiðum og líka skemmtilegheit,“ segir Erna. Námskeiðin eru börnunum og unglingunum að kostnaðarlausu.Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, eins og heilsutengd námskeið, námskeið fyrir nýgreindar konur, fræðslufundi fyrir karlmenn, jógahópa, gönguhópa, líkamsrækt, handverkshópa, nudd og fleira.Starfsemin er alla virka daga frá klukkan 8.30 til 16 á Langholtsvegi 43.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira