Allt að 75 prósent landsmanna tekur þátt í peningaspilun Jakob Bjarnar skrifar 11. september 2014 15:00 Vísir/AFP
Spilahegðun Íslendinga á netinu er í litlu frábrugðin því sem gerist og gengur meðal annarra þjóða. Ungir karlmenn skera sig úr og eru langduglegastir að spila póker og fjárhættuspil á netinu. Á mánudaginn verður haldin málstofa um netspilahegðun Íslendinga þar sem Dr. Daníel Ólason, Háskóla Íslands, og Dr. Heather Grey, Harvard University, kynna rannsóknarniðurstöður og ræða kosti og galla peningaspila á Internetinu. Heimsókn Grey, sem er rannsakandi við Harvard og hefur verið að rannsaka spilahegðun á netinu, stendur fyrir dyrum og var ákveðið að slá saman og ræða þær rannsóknir og svo rannsóknir Daníels, sem hefur skoðað áhrif efnahagshrunsins á peningaspilun. Þau munu kynna niðurstöður sinna rannsókna.Þátttaka almennings í fjárhættuspilum eykst„Það hefur aukist mjög þátttaka almennings í peningaspilun á netinu og ýmislegt sem bendir til að það muni færast frekar í aukana en hitt. Og menn eru að velta því fyrir sér hvað það mun þýða. Nú er aðgengi betra en hefur verið og peningaspil á netinu er hraðara í úrvinnslu en sé spilað með hefðbundnum hætti. Og menn velta fyrir sér hvort það muni leiða til aukins vanda eða ekki? Þetta eru þær spurningar sem ég vonast til að Heather muni geta hjálpað okkur að velta upp og hugsanlega svara,“ segir Dr. Daníel.Fer fjölgandi sem leita á erlendar spilasíðurFaraldsfræðilegar rannsóknir benda til þess að 15 prósent Íslendinga hafa lagt undir fé til að spila á netinu. Daníel segir flesta þó stunda getraunir og lottó. Hins vegar eru tiltölulega fáir sem spila á erlendum netsíðum en þeim fer fjölgandi. „Þegar ég skoða mín gögn þá sé ég að þeir sem eiga í vanda vegna peningaspila þeir eru líklegri til að spila á erlendum netsíðum, eða spilasíðum, og þá helst internetpóker. Það er ekki leikur sem innlendir aðilar bjóða uppá.“ Daníel segir eldri gögn sýna að margföldun hefur orðið á fjölda þeirra unglinga sem hafa spilað peningaspil á netinu. Er netspilamennska ánetjandi eða sækja spilasjúkir í netspilamennsku? „Áhyggjur manna af þessu snúast kannski að því, þegar menn skoða hlutfall þeirra sem eiga við vanda að stríða eftir því hvort þeir spila á netinu eða ekki,“ heldur Daníel áfram. „Þá sjáum við að hlutfallið er hærra meðal þeirra sem spila líka á netinu. Þá getur maður velt því fyrir sér hvort það sé eðli netspilamennsku sem er meira ánetjandi eða eru það þeir sem eiga við vanda að stríða sem eru að færa sig meira á netið. Og við getum í rauninni ekki skorið úr um hvort skýringin sé líklegri.“ Daníel segir Íslendinga ekki ginnkeyptari fyrir peningaspilun en aðra. „Nei. Peningaspilun er afskaplega áþekk hér og ef við berum okkur saman við aðrar Evrópuþjóðir. Það eru svona 70 til 75 prósent landsmanna sem tekur þátt í peningaspilun að einhverju marki. Hefur spilað minnsta kosti einu sinni á síðustu 12 mánuðum. Það er afskaplega áþekkt og þekkist erlendis. Og þegar við skoðum vandann þá skerum við okkur ekki úr að neinu leyti.“Karlmenn miklu sólgnari í fjárhættuspil En, sé þetta greint út frá kynjum; eru karlmenn fíknari í þetta en konur? „Já, þegar við skoðum þetta eftir kyni þá sjáum við að karlar spila almennt meira peningaspil, þeir spila sérstaklega peningaspil þar sem þeir halda að þeir hafi einhverja stjórn eða geti spáð fyrir um niðurstöðu leiks. Eins og til dæmis að tippa á fótbolta eða spila póker. Þeir spila almennt meira og með netspilun á erlendum netsíðum, þá eru þetta fyrst og fremst karlar, ungir karlar sem sækjast eftir því að spila þarna. Þegar við skoðum spilavanda sjáum við það líka að þeir sem eiga við spilavanda að stríða á Íslandi eru í algjörum meirihluta karlmenn. Afgerandi,“ segir Dr. Daníel Ólason.
Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira