Skelkuð hryssa hífð upp úr vatnsbóli Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. september 2014 13:15 Hryssan barðist nokkuð um þegar björgunarsveitarmaður kom poka undir hana svo hægt væri að hífa hana upp. Mynd/Sigfús Heiðar
Meðlimir Björgunarfélagsins Blöndu á Blönduósi stóðu í ströngu í gær þegar þeir björguðu hryssu sem fallið hafði í vatnsból við bæinn Kagaðarhól í Svínadal í Austur-Húnavatnssýslu. Sigfús Heiðar Árdal, formaður Blöndu, segir að björgunin hafi gengið vel. „Við komum þarna sex úr björgunarfélaginu, við erum allt vanir hestakallar og höfum áður þurft að bjarga hrossum úr svipuðum aðstæðum. Björgunin sjálf tók því ekki nema um 20 mínútur þegar við vorum komnir á staðinn,“ segir Sigfús.Hryssan var ekki alvarlega slösuð og bar sig nokkuð vel þegar hún kom úr vatnsbólinu. Mynd/Sigfús HeiðarAðspurður segir hann ekki víst hvenær hryssan hafi dottið ofan í vatnsbólið en líklegast hafi það gerst á aðfaranótt miðvikudags. Girða á í kringum það um helgina svo svona endurtaki sig ekki. Hryssan var ekki alvarlega slösuð, segir Sigfús. Hún hafi verið með fleiður á hnjánum þar sem hún hafi reynt að komast upp úr vatnsbólinu en grunnur þess er steyptur. „Hryssan var nokkuð hrædd og barðist um þegar við reyndum að koma henni í pokann svo hægt væri að hífa hana upp úr vatnsbólinu.“ Hún hafi þó verið frekar hress og farið strax á beit eftir að henni var bjargað. Sigfús segir að síðan hafi verið farið með hana í hesthúsið þar sem dýralæknir hafi ætlað að koma og kíkja á hana. Hér að neðan má sjá myndband af björguninni sem fengið er af Facebook-síðu Sigfúsar. Post by Sigfús Heidar.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira