Finnur fyrir minni fordómum í garð einhverfra Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 1. apríl 2014 15:07 "Það að vera einhverfur þýðir ekki að maður geti ekki stofnað fjölskyldu og starfað og lifað lífinu eins og hver annar,“ segir Mamiko. „
Fólk veit meira um einhverfu núna en bara fyrir tveimur árum, það er mín tilfinning,“ segir Mamiko Dís Ragnarsdóttir, 29 ára gömul kona sem var greind með asperger fyrir rúmum tveimur árum síðan þá 27 ára að aldri. Einhverfa sé vítt hugtak sem nái yfir dæmigerða einhverfu, asperger og röskun á einhverfurófi. Á morgun er alþjóðlegur dagur einhverfu. „Það að vera einhverfur þýðir ekki að maður geti ekki stofnað fjölskyldu og starfað og lifað lífinu eins og hver annar,“ segir Mamiko. Hún segist alltaf finna fyrir minni og minni fordómum í sinn garð og gagnvart einhverfu. Mamiko starfar á leikskóla og við tónlistarkennslu. Hún segist hafa fengið mikið hrós frá bæði vinnuveitendum og foreldrum sínum og því sé hún viss um að hún sé að standa sig vel. Stuttu eftir Mamiko var greind var tekið við hana viðtal í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hún segir að lífið hafi breyst til batnaðar frá því þá og hún sé sífellt að læra. Greiningin hafi skipt hana miklu og í dag sé hún miklu ánægðari en fyrir greiningu. Áður fyrr hafi sjálfsálit hennar verið í molum og hún hafi upplifað sig misheppnaða. Sú hugsun er sem betur fer á undanhaldi að hennar sögn. „Hugsunin um að ég sé kannski bara misheppnaður aumingi verður sífellt fjarlægari og mér finnst ótrúlegt að ég hafi hugsað á þann hátt um mig sjálfa,“ segir hún. „Ég hef miklu meira sjálfstraust í dag.Lætur sig málefnið varða Mamiko hefur látið sig málefnið varða. Hún heldur meðal annars út bloggi þar sem hún lýsir upplifun sinni á einhverfu. Hún stofnaði einnig hóp á Facebook sem hún kallar „Einhverfurófsgrúppuna. Hana stofnaði hún stuttu eftir að hún fékk greininguna. Um 600 manns hafa gengið í hópinn og er Mamiko mjög ánægð með það. „Það er frábært að það sé svona mikill áhugi á þessu.“ Mamiko hefur búið til myndband við lagið sitt „Skrýtin“ sem hún byrjaði að semjá árið 2009 en lauk við í fyrra. Hún stefnir á útgáfu sóló plötu í haust . Á plötunni syngur hún lög við ljóð Kristjáns Hreinssonar á íslensku og japönsku.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira