Alþingi mun staðfesta skipun dómara við nýtt millidómstig - Landsrétt Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. júlí 2014 18:52 Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður var formaður nefndarinnar sem samdi frumvarpið um nýja millidómstig sem hefur fengið nafnið Landsréttur.
Stefnt er að því að nýtt millidómstig, sem tekið verður upp á Íslandi, muni bera heitið Landsréttur. Verður það sérstakur áfrýjunardómstóll fyrir allt landið sem mun létta þunganum á Hæstarétti ef tillögur nefndar sem vinna frumvarp um málið ná fram að ganga. Alþingi mun þurfa að staðfesta skipun 15 dómara við hinn nýja dómstól sem er alveg ný aðferðafræði við skipun dómara hér á landi.Nokkuð breið sátt er meðal lögfræðinga um þörfina fyrir millidómstig og umræðan hefur staðið yfir í nokkuð ár. Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari birti til dæmis ritgerð á vordögum 2013 sem ber heitið „Veikburða Hæstiréttur“ þar sem hann fjallaði um meinbaugi á dómskerfinu og þá staðreynd að Hæstiréttur Íslands er að kikna undan álagi. Hæstiréttur hafi ekki verið gert nægilega vel kleift að rækja hlutverk sitt sem eiginlegur Hæstiréttur sem dæmi í stórum fordæmisgefandi málum.Fjölskyldustemmning í Hæstarétti Í ritgerðinni talar Jón Steinar Gunnlaugsson um fjölskyldustemmningu í Hæstarétti og segir á einum stað: „Kannski er fjölskyldustemningin afleiðing af allt of miklu málaálagi. Einstaklingarnir sem skipa dóminn hverju sinni eru eðlilega misjafnlega þeim kostum búnir að geta unnið undir því mikla álagi sem felst í að kynna sér öll málin svo vel sem nauðsynlegt er. Ég held að fæstir þeirra ráði við álagið þegar málafjöldinn er orðinn svo mikill sem raun ber vitni“ (bls. 55). Alvarlegasti gallinn við núverandi kerfi er sú staðreynd að ekki fer fram milliliðalaus sönnunarfærsla í sakamálum fyrir Hæstarétti heldur byggir rétturinn á endurritum úr þingbók af munnlegum skýrslum sem gefnar voru í héraði. Þannig skynja dómarar aldrei af eigin raun framburð vitna heldur þurfa að lesa frásögn þeirra á skjölum. Með þessu er farið á svig við meginregluna um milliliðalausa sönnunarfærslu. Nefnd um millidómsstig sem Ögmundur Jónasson þáverandi innanríkisráðherra skipaði í júní 2011 segir: „Þessi ágalli á sakamálalögum og réttarframkvæmd er svo alvarlegur að tafarlausra úrbóta á íslenskri réttarskipan er þörf.“Alþingi þarf að samþykkja nýja dómara Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra skipaði í fyrra nýja nefnd um millidómstig sem falið er að vinna frumvarp um breytingar á lögum um Hæstarétt og setja fram nýtt frumvarp um millidómstig. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er lagt til af nefndinni að hið nýja dómstig muni bera heitið Landsrétturinn og verður áfrýjunardómstóll fyrir alla héraðsdómstólana á landinu. Gert er ráð fyrir að allt að fimmtán nýjar stöður dómara verði til í Landsrétti. Þá mun nefndin leggja til að innanríkisráðherra tilnefni dómara í réttinn að fenginni umsögn hæfnisnefndar og síðan þurfi Alþingi að staðfesta skipun allra dómara við fyrstu skipun þeirra. Er þetta alveg ný nálgun við skipun dómara hér á landi. Þá fækkar dómurum við Hæstarétt og rétturinn mun aðeins taka við stórum fordæmisgefandi málum sem fá áfrýjunarleyfi.Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherraSamkvæmt heimildum fréttastofu hefur gætt talsverðar óánægju hjá réttarfarsnefnd með að þessari nefnd innanríkisráðherra hafi verið falið að semja frumvarpið þar sem það lúti að grundvallarbreytingum á dómskerfi landsins. Mun formaður réttarfarsnefndar, Eiríkur Tómasson hæstaréttardómari, hafa látið í ljós ánægju með að nefndinni hafi verið falið svo mikið ábyrgðarhlutverk þar sem í nefndinni séu ungir lögfræðingar sem hafi ekki nægilega mikla reynslu til verksins. Þess skal getið að formaður nefndarinnar, Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður er 43 ára og hefur 17 ára reynslu af lögmennsku. Þá hefur það verið afstaða innanríkisráðherra, samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar, að ekki sé eðlilegt að dómararnir sjálfir semji frumvarp til breytinga á eigin starfsumhverfi, þ.e. dómstólunum. Betra sé að fá utanaðkomandi lögfræðinga til verksins. Frumvarp nefndarinnar verður sent til réttarfarsnefndar til umsagnar síðar í þessum mánuði. Ef allt gengur að óskum gæti framlagningarhæft frumvarp litið dagsins ljós í innanríkisráðuneytinu með haustinu.
Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Innlent Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Erlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Innlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Fleiri fréttir Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Lítið breytt staða á bráðamóttökunni Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Fleiri gætu kallað eftir því að fá Hringveginn Varað við hríð á norðvestanverðu landinu Liðhlaupi úr Samfylkingunni fær annað sætið hjá Framsókn Snjókoma og slydda fyrir norðan en þurrt fyrir sunnan Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Bíða enn bóta eftir ofbeldið á Hjalteyri: „Við erum týnd og gleymd“ Lokar athugun á eftirliti MAST með blóðmerahaldi án athugasemda Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Stúlkan sem leitað var að er fundin Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Icelandair verðmætara í rekstri en partasölu Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Sjá meira