Óskar eftir því að fá aðgang að skýrslu um pyntingar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. desember 2014 17:38 Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra. Vísir/Daníel
Utanríkisráðuneytið hefur óskað eftir því við bandarísk stjórnvöld að fá aðgang að skýrslu leyniþjónustunefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings um pyntingar bandarísku leyniþjónustunnar. Ráðuneytið hefur farið yfir þær 500 blaðsíður úr skýrslunni sem gerðar voru aðgengilegar í vikunni en í þeim hluta er ekki fjallað um Ísland eða millilendingar hér á landi, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Sé ekki hægt að fá aðgang að allri skýrslunni mun ráðuneytið fara fram á að fá upplýsingar um það hvort Ísland komi fyrir í skýrslunni og fá þá aðgang að þeim upplýsingum. Tilkynningu ráðuneytisins má sjá hér að neðan:Vegna skýrslu leyniþjónustunefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings þar sem fjallað er um yfirheyrsluaðferðir bandarísku leyniþjónustunnar yfir grunuðum hryðjuverkamönnum, vill utanríkisráðuneytið taka eftirfarandi fram:Ráðuneytið hefur farið yfir efni 500 bls. úrdráttar úr skýrslunni sem gerður var aðgengilegur fyrr í vikunni. Af þeirri skoðun verður ekki ráðið að fjallað sé um Ísland eða millilendingar hér á landi með fanga. Ráðuneytið hefur í framhaldi af þessu farið fram á við bandarísk stjórnvöld að fá aðgang að sjálfri skýrslunni. Sé það ekki mögulegt, hefur ráðuneytið farið fram á upplýsingar um hvort Ísland komi fyrir í skýrslunni og þá að fá aðgang að þeim upplýsingum.Í þessu sambandi má minna á að árið 2007 var skipaður sérstakur starfshópur í ráðuneytinu til að skoða staðhæfingar um að loftför sem grunur lék á að hafi verið notuð í meintu fangaflugi um íslenskt svæði. Hópurinn skilaði skýrslu í nóvember 2007 þar sem fram kom að flugvélar sem kunna að hafa tengst meintu fangaflugi hefðu haft viðkomu á Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli á tímabilinu september 2001 til júlí 2007.Í skýrslunni kom fram að utanríkisráðuneytinu var ekki kunnugt um ferðir flugvéla um íslenska lofthelgi með fanga eða meinta hryðjuverkamenn sem hvorki nytu verndar né meðhöndlunar samkvæmt alþjóðasáttmálum. Ekki hefði verið sótt um yfirflugs- eða lendingarleyfi fyrir slíkar vélar. Ljóst mætti vera að fangaflutningar um íslenska lofthelgi sem ekki samræmdust alþjóðalögum og skuldbindingum Íslands, væru í óþökk íslenskra stjórnvalda. Stjórnvöldum væri ekki kunnugt um að það hefði átt sér stað, enda myndu þau aldrei samþykkja slíkt flug.
Tengdar fréttir Utanríkisráðuneytið með pyndingarskýrsluna til skoðunar Ekkert kom fram um Ísland við fyrstu athugun ráðuneytisins. 12. desember 2014 11:41 Fjórtán þingmenn vilja fordæma pyndingar CIA Tilefnið er birting skýrslu öldungadeildar bandaríska þingsins sem lýsir hrottalegum pyndingum sem framkvæmdar voru undir stjórn CIA. 12. desember 2014 11:01 Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Sjá meira
Utanríkisráðuneytið með pyndingarskýrsluna til skoðunar Ekkert kom fram um Ísland við fyrstu athugun ráðuneytisins. 12. desember 2014 11:41
Fjórtán þingmenn vilja fordæma pyndingar CIA Tilefnið er birting skýrslu öldungadeildar bandaríska þingsins sem lýsir hrottalegum pyndingum sem framkvæmdar voru undir stjórn CIA. 12. desember 2014 11:01