Innlent

Biður borgarbúa afsökunar á röð óhappa

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Ekkert lát er á óánægju með ferðaþjónustu fatlaðra eftir að strætó tók við akstrinum. Tilkynnt hefur verið um fjölmörg óhöpp, fatlaðir hafa oltið úr hjólastólum og heilabilaðir sjúklingar týnst.

Björn Blöndal borgarfulltrúi bað fatlaða afsökunar á röð óhappa í samtali við Stöð 2. Hann minnir þó á að ætlunin sé fyrst og fremst að bæta þjónustuna, því með nýja kerfinu er unnt að panta far með skemmri fyrirvara en áður. Reynt sé að gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir slíkt.

Bergur Þorri er varaformaður Sjálfsbjargar.
Stöð 2 fjallaði um málið um miðjan nóvember en þá var talið að um byrjunarörðugleika væri að ræða.  Óánægjan hefur hinsvegar stigmagnast og rætt er um algert klúður.

Um áramótin verður nýja kerfið innleitt í öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu nema Kópavogi.

Bergur Þorri Benjamínsson varaformaður Sjálfsbjargar segir að menn viti ekki sitt rjúkandi ráð. Það væri ráð að anda rólega og fara hægar í  að steypa öllum sveitarfélögunum í sama klúðrið og nú þegar sé í gangi. 

Björn Blöndal segist telja að það sé of seint að fresta því að innleiða kerfið hjá öðrum sveitarfélögum. Það sé skynsamlegast að gera allt sem mögulegt sé til að bæta þjónustuna innan þess kerfis sem sem verið sé að innleiða.


Tengdar fréttir

Fatlaðir látnir rúnta um bæinn í hagræðingarskyni

Ferðaþjónusta fyrir fatlaða í borginni er í ólestri eftir að strætó tók við rekstrinum og breytti fyrirkomulaginu. Ferð sem á að taka tíu mínútur hvora leið getur tekið marga klukkutíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×