Innlent

Verzlingarnir sextán fá að snúa aftur

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Nemendurnir fá að halda áfram námi sínu.
Nemendurnir fá að halda áfram námi sínu.
Sextán nemendur Verzlunarskóla Íslands, sem var tímabundið vísað frá vegna drykkju í húsakynnum skólans, fá að halda áfram námi sínu. Þetta staðfestir Ingi Ólafsson skólameistari í samtali við Vísi.

„Já, þeir fá að halda áfram. Öll dýrin í skóginum eru vinir núna,“ segir hann. Ingi segir að gert hafi verið samkomulag við hvern og einn nemanda en hann vill ekki fara nákvæmlega í hverju það felist.

„Þeir átta sig alveg á mistökunum sínum,“ útskýrir hann enn fremur.

Í síðustu viku sagði Vísir frá því að sextán piltum á fjórða ári í Verzlunarskólanum hafði verið vísað úr skólanum eftir að hafa neytt áfengis í kjallara skólans, áður en þeir héldu í Leifsstöð þar sem þeir áttu flug til Ítalíu í námsferð sem tengdist listfræðinámi þeirra.

Ingi skólameistari sagði þá í samtali við Vísi að hann ætlaði að funda með nemendunum og gefa þeim kost á því að útskýra hvers vegna þeir ættu að fá að ljúka námi sínu við skólann. Í fyrstu frétt Vísis af málinu kom fram að afar strangar reglur séu um neyslu vímuefna í skólanum:

„Notkun tóbaks (reyktóbak, neftóbak og munntóbak) er stranglega bönnuð í húsakynnum skólans og á lóð hans.

Stranglega er bannað að hafa um hönd áfengi og önnur vímuefni eða vera undir áhrifum þeirra í húsnæði skólans og á lóð hans. Neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð á öllum samkomum og ferðalögum sem eru í nafni skólans,“ segir í reglum Verzlunaskólans.


Tengdar fréttir

Reknir úr Verzló fyrir áfengisneyslu

Sextán piltum á fjórða ári í Verzlunarskóla Íslands var í morgun vísað úr Verzlunarskóla Íslands fyrir að hafa neytt áfengis í skólabyggingunni.

Dýrkeypt djamm Verzlinga

Pöntuðu sér Hummer-limmósínu áður en þeir héldu út til Ítalíu í listaferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×