Dýrkeypt djamm Verzlinga Jakob Bjarnar skrifar 21. október 2014 16:51 Hópurinn var á leiðinni til Flórens í ferð í listasöguáfanga. visir/ap/hörður
Sextán drengir hafa verið reknir úr Verzlunarskólanum. Vísir greindi frá málinu í dag en ástæða brottreksturs er sú að drengirnir voru staðnir að drykkju í húsakynnum skólans, sem þykir alvarlegt brot á reglum skólans. Forsaga málsins er að hópur nemenda við Verzlunarskólann voru að fara til Ítalíu í námsferð sem tengdist listfræðinámi nemendanna. Samkvæmt heimildum Vísis voru nemendurnir hátt uppi og hressir vegna fyrirhugaðrar ferðar; skemmtu sér vel í kjallara skólans áður en farið var út á Leifsstöð. Þeir hringdu meðal annars í MR-útvarpið, en þar stóð yfir svokölluð árshátíðarvika, og greindu kollegum sínum í stétt framhaldsskólanema frá ævintýrum sínum. Og tilkynntu í útvarpsviðtalinu að þeir ætluðu að vera flottir á því og panta sér Hummer-limmósínu til að flytja hluta hópsins út á Leifsstöð. Sem þeir og gerðu. Þegar þeir svo mættu í skólann í gær var þeim tilkynnt að þeim hefði verið vísað úr skólanum vegna áðurnefnds brots. Um er að ræða tímabundin brottvikning en í næstu viku munu þeir svo funda með skólastjórnendum, þar sem hlustað verður á málsbætur þeirra, eigi þeir sér einhverjar.Uppfært kl. 18.00Í fyrri útgáfu fréttarinnar voru birtar myndir af nemendunum fyrir framan fyrrnefnda limmósínu. Myndirnar voru birtar í gegnum Facebook-síðu ICELIMO en hafa nú verið fjarlægðar þaðan.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira