Fyrsti blindi nemandinn nemur við Bifröst Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. október 2014 11:18 Mitchel Snel ásamt Karl Eiríkssyni. Mynd/Háskólinn á Bifröst
Einn af skiptinemunum við Háskólann á Bifröst á haustönn 2014 er Mitchel Snel frá The Hague University í Hollandi. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þá staðreynd að Mitchel er blindur og er hann fyrsti blindi nemandinn til að stunda nám við Háskólann á Bifröst. Snel ferðaðist frá Hollandi einn síns liðs og er því mjög sjálfstæður. Hann lætur fötlun sína ekki stöðva sig og er staðráðinn í að láta sjónina ekki aftra sér á nokkurn hátt. Mitchel notar tæknina mikið til að aðstoða sig í náminu og er t.a.m. með talgervil sem aðstoðar hann við yfirferð á námsefninu að því er segir í frétt skólans. Aðspurður út í hans ákvörðun um að koma til Íslands í skiptinám hafði hann þetta að segja: „Ég hef ferðast víða um Evrópu en fyrir mig er Ísland einstakur staður til að heimsækja. Ég hef mikinn áhuga á jöklum og eldfjöllum og svo er Ísland mjög framarlega hvað varðar tækni, það skipti mig mjög miklu máli þegar ég tók ákvörðun um áfangastað,“ segir Snel. Hann segist hafa fengið mjög góðar viðtökur hér á landi og fólk sé viljugt til að hjálpa ef þörf sé á. „Ég valdi Bifröst vegna stærðar skólans sem hentar mér mjög vel, þar sem ég get gengið stuttar vegalengdir í allt sem ég þarf. Ég er vanur því að búa í stórborg og í skólanum mínum eru 28.000 nemendur svo breytingin er töluverð“. Að sögn Karls Eiríkssonar, alþjóðafulltrúa á Bifröst, var Mitchel tilnefndur með góðum fyrirvara þannig að hægt var að undirbúa komu hans. „Mitchel er framúrskarandi nemandi sem hefur náð að aðlagast samfélaginu hér á Bifröst mjög vel.“
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira