Tólf daga gluggi til að veiða um 48 þúsund rjúpur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. október 2014 10:19 Náttúrufræðistofnun metur veiðiþol rjúpnastofnsins 48.000 rjúpur. Vísir/GVA
Rjúpnaveiðar munu hefjast föstudaginn 24. október. Heimilt er að veiða í samtals tólf daga sem skiptast á fjórar þriggja daga helgar fram til 16. nóvember. Á síðasta ári ákvað ráðherra fyrirkomulag rjúpnaveiða til þriggja ára. Komi ekkert óvænt fram um ástand rjúpnastofnsins liggur fyrir að sambærilegt fyrirkomulag verður einnig haft á rjúpnaveiðinni á næsta ári. Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar. Náttúrufræðistofnun metur veiðiþol rjúpnastofnsins 48.000 rjúpur. Umhverfisstofnun telur að veiðin í ár verði í samræmi við veiðiþolsmatið þar sem það er um 10% af áætluðum veiðistofni. Fyrir liggur að sölubann á rjúpu og rjúpuafurðum hefur ásamt hófsemi veiðimanna skilað góðum árangri í veiðistjórnun. Eftir að sölubann kom til eru vísbendingar um að veiðimenn veiði 10% rjúpnastofnsins óháð fjölda leyfilegra sóknardaga. Að meðaltali hafa rjúpnaveiðimenn farið þrjá og hálfan dag til rjúpnaveiða óháð því hversu marga daga er leyfilegt að veiða. Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2014 er eftirfarandi: Veiðiverndarsvæði er áfram á SV-landi.Veiðitímabilið skiptist á fjórar helgar með eftirfarandi hætti: -Föstudaginn 24. október til sunnudags 26. október. Þrír dagar. -Föstudaginn 31. október til sunnudags 2. nóvember. Þrír dagar. -Föstudaginn 7. nóvember til sunnudags 9. nóvember. Þrír dagar. -Föstudaginn 14. nóvember til sunnudags 16. nóvember. Þrír dagar. Veiðimenn eru hvattir til að hætta við veiðiferð ef veðurspá gefur tilefni til og huga vel að útbúnaði og öryggismálum. Hver og einn veiðimaður er ennfremur hvattur til að veiða ekki meira en þörf er á og stunda þannig hófsamar veiðar. Veiðimenn eru ennfremur hvattir til að kynna sér 112 snjallsímaforritið á safetravel.is. Forritið er afar einfalt í notkun og hefur tvennskonar virkni. Annarsvegar er hægt að kalla á aðstoð ef um slys eða óhapp er að ræða. Hinsvegar að skilja eftir sig „slóð“ sem kemur að miklu gagni ef óttast er um afdrif viðkomandi og leit þarf að fara fram. Forritið leysir ekki af hólmi önnur öryggistæki eins og neyðarsenda, talstöðvar og áttavita en nýtist vel veiðimönnum sem nota snjallsíma.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Trump: Khamenei látinn Erlent Fleiri fréttir Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Um helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af ásælni Bandaríkjanna í Grænland Fjórtán gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum Guðmundur Árni leiðir áfram listann Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Forsetahjónin verða viðstödd vígslu íþróttamannvirkis í Búðardal Árás á Íran, Háskóladagurinn og stórkostlegur endurkomusigur Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Frostlaust sums staðar sunnan heiða Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ „Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Sjá meira