Valhúsaskóli fagnar 40 ára afmæli Stefán Árni Pálsson skrifar 16. október 2014 12:17 mynd/aðsend
Valhúsaskóli á Seltjarnarnesi fagnaði 40 ára afmæli í gær með fjölbreyttri dagskrá í skólanum þar sem fram komu núverandi og fyrrverandi nemendur og kennarar og slógu á létta strengi. Einnig flutti skólastjóri skólans, Guðlaug Sturlaugsdóttir, ávarp og bæjarstjóri Seltjarnarness, Ásgerður Halldórsdóttir sté á stokk og tilkynnti að bærinn hygðist gefa nemendaráði skólans gjöf sem gæti komið þeim að gagni í starfsemi þeirra. Nemendur buðu upp á leiðsögn um húsnæðið, en þeir höfðu lagt mikinn metnað í að skreyta skólann og taka saman mikið magn upplýsinga sem sýndi sögu skólans í máli og myndum og hengt upp um veggi skólans. Þá var einnig boðið upp á veitingar í mötuneyti skólans.mynd/aðsendMikið fjölmenni var á samkomunni og mátti þar bæði sjá fyrrverandi nemendur og kennara auk foreldra núverandi nemenda sem og aðra bæjarbúa á Nesinu. Skólahald hófst í Valhúsaskóla haustið 1974. Fram að því hafði kennsla elstu deilda grunnskólans farið fram í Mýrarhúsaskóla. Allt fram til ársins 2004 voru skólarnir, Valhúsaskóli og Mýrarhúsaskóli, reknir sem tvær aðskildar stofnanir en árið 2004 voru þeir sameinaðir í Grunnskóla Seltjarnarness. Starfsstöðvarnar hafa, þrátt fyrir það, haldið fyrri nöfnum sínum. Fyrsti skólastjóri Valhúsaskóla var Ólafur H. Óskarsson. Hann vann fyrst sem ráðgjafi skólanefndar Seltjarnarness við hönnun skólans og vann náið með Vilhjálmi Hjálmarssyni, arkitekt hússins. Árið 1997 lét Ólafur af störfum fyrir aldurs sakir en þá tók Sigfús Grétarsson við stöðunni og stýrði hann skólanum til ársins 2007 er núverandi skólastjóri, Guðlaug Sturlaugsdóttir, tók við starfinu.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira