Fótbolti

Fridolina gerði út um Meistaradeildardrauma Katrínar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Katrín Ómarsdóttir varð enskur meistari með Liverpool annað árið í röð á dögunum.
Katrín Ómarsdóttir varð enskur meistari með Liverpool annað árið í röð á dögunum. vísir/getty
Katrín Ómarsdóttir og stöllur hennar í enska meistaraliðinu Liverpool eru úr leik í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu.

Liverpool tapaði, 3-0, fyrir sænska liðinu Linköping á útivelli í kvöld, en fyrri leikinn unnu ensku meistararnir, 2-1. Samanlagður sigur Linköping, 4-2.

Hin tvítuga Fridolina Rölfo fór illa með Liverpool-liðið í kvöld, en hún skoraði öll þrjú mörkin.

Það fyrsta setti hún á 24. mínútu og hin komu á sex mínútna kafla í seinni hálfleik. Staðan orðin 3-0 eftir 56 mínútur og Meistaradeildardraumar Liverpool dánir.

Stjarnan tapaði einnig fyrr í dag fyrir rússneska liðinu Zvezda, en eitt Íslendingalið komst í 16 liða úrslitin þegar sænsku meistararnir í Rosengård tryggðu sig áfram í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×