Gekk á Hvannadalshnjúk á gervifæti Hjörtur Hjartarson skrifar 7. október 2014 19:45
Fyrstu tólf tímarnir voru frekar léttir en síðustu tveir býsna erfiðir," segir Ragnar Hjörleifsson, sem gekk á Hvannadalshnjúk í vor. Það merkilega við fjallgöngu Ragnars er að hann missti annan fótinn í vinnuslysi fyrir tæpum fjörtíu árum og gengur nú á gervifæti. Ragnar býr í Mosfellsbæ og telur það ekki eftir sér að hjóla til fundar við fréttamann með hundinn Leó með sér. Ragnar missti hægri fótinn í vinnuslysi árið 1977, þegar hann var 17 ára, lenti í drifskafti eins og hann orðar það. Það hefur þó ekki hægt á honum nema síður sé. Ragnar hefur verið duglegur að ganga á fjöll og núna í vor komst hann á hæsta tind Íslands, sjálfan Hvannadalshnjúk. „Ég fór 16. maí á þessu ári,“ segir Ragnar.Og var það ekkert mál?„Jújú, þetta er auðvitað smá mál. Við vorum fjórtán og hálfan tíma á leiðinni. Þetta var erfitt. Fyrstu tólf tímarnir voru léttir en tveir síðustu býsna erfiðir.“ Ragnar segist ekki hafa hugmynd um það hvort hann sé sá fyrsti eða eini sem gengið hefur Hvannadalshnjúk á gervifæti. Afrekið sé kannski meira í hugum annarra en hans eigin enda fátt, ef nokkuð, sem hann ekki getur. „Það reyndi í mínu tilfelli meira á þolið mitt heldur en endilega á gervifótinn.“ Ragnar stefnir ekki á stærri fjallgöngusigra í framtíðinni, Esjan henti honum ágætlega í bili. „Jájá, ég fer hérna reglulega með hundinn. Esjan hentar mér ágætlega, hún er passlega löng og passlega brött,“ segir Ragnar og rýkur af stað. Metið hans upp að Steini er 47 mínútur, kannski féll það met í dag.“
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira